Þénaði rúmar sex milljónir á átta dögum

Lamar Odom á viðburði í maí 2019. Hann þénaði um 6,1 milljón króna á fyrstu átta dögunum eftir að hann opnaði síðu á OnlyFans AFP/Rich Fury

Fyrrverandi körfuboltastjarnan Lamar Odom þénaði 50 þúsund Bandaríkjadali, jafnvirði um 6,1 milljónar króna, á fyrstu átta dögunum eftir að hann opnaði síðu á áskriftarvefnum OnlyFans.

Odom, sem varð tvívegis NBA-meistari með Los Angeles Lakers en er þekktastur fyrir að vera fyrrverandi eiginmaður raunveruleikastjörnunnar Khloé Kardashian, tilkynnti í síðasta mánuði að hann hefði bæst í hóp þeirra sem bjóða upp á efni á vefnum.

Mánaðaráskrift að síðu hans kostar 14,99 dali, eða um 1.840 krónur.

„Viðbrögðin hafa verið ótrúleg,“ segir Odom í yfirlýsingu til Page Six. „Ég er að tengjast aðdáendum á alveg nýjan hátt og byggja upp eitthvað stórt. Nú vil ég fá fleiri íþróttamenn með mér.“

Hann hefur lítið gefið upp um hvers konar efni áskrifendur fá að sjá en lofar að sýna á sér persónulegri og gáskafyllri hlið en áður.

„Ég hef lifað ansi viðburðaríku lífi og trúið mér, ég á enn ýmislegt óvænt í pokahorninu,“ sagði hann við fjölmiðla vestanhafs. „Ég hef alltaf verið eins og opin bók, en það eru kaflar sem fólk hefur ekki enn séð.“

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅