Minna hlutverk bíður Harrys
Harry Bretaprins í Lundúnum í janúar. Hann lætur af stjórnunarstarfi hjá BetterUp en verður áfram ráðgjafi fyrirtækisins. AFP/Henry Nicholls
Harry Bretaprins hverfur úr stjórnendateymi markþjálfunarfyrirtækisins BetterUp eftir fimm ára starf. Hann verður áfram ráðgjafi fyrirtækisins en breytingin á að gefa honum meira svigrúm til að sinna eigin fjárfestingum og nýjum viðskiptatækifærum.
Alexi Robichaux, framkvæmdastjóri og meðstofnandi BetterUp, tilkynnti um málsatvik um helgina. Fyrirtækið býður upp á markþjálfun á netinu með áherslu á andlega líðan.
Harry gekk til liðs við fyrirtækið árið 2021. Í nýju hlutverki mun hann vinna að tilteknum verkefnum fyrir nokkra af stærstu viðskiptavinum þess.
Fær tíma fyrir önnur verkefni
Robichaux fer fallegum orðum um framlag prinsins og segir hann hafa verið einn af áberandi talsmönnum geðræktar þegar hann hóf störf. Þá hafi Harry lagt áherslu á að markþjálfun ætti að standa öllum til boða.
Auk fjárfestinga og viðskipta á prinsinn að fá meiri tíma til að sinna góðgerðarmálum sem standa honum nærri.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗