Tindastóll jafnaði toppliðin að stigum
Tindastóll vann ÍR, 94:87, í úrvalsdeild karla í körfubolta á Sauðárkróki í kvöld.
Eftir sigurinn er Tindastóll kominn með tíu stig í öðru sæti deildarinnar, jafnmörg og KR í fyrsta og Valur í þriðja, en Sauðkrækingar hafa leikið einum leik meira. ÍR er aftur á móti í níunda sæti með tvö stig.
ÍR var einu stigi yfir eftir fyrri hálfleik, 43:42, en Tindastólsmenn voru öflugir í þriðja leikhluta og unnu hann með níu stigum, 27:18, og komust í átta stiga forskot, 69:61.
Tindastóll hélt forskoti sínu út fjórða leikhluta og vann því sjö stiga sigur.
Nemanja Durisic fór mikinn í liði Tindastóls en hann skoraði 31 stig, tók tíu fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Tawio Badmus skoraði þá 14 stig, tók fimm fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.
Hjá ÍR skoraði Montez Mathis 26 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗