Reiðin blossaði upp þegar hann sá fréttirnar – „Eins og að fá þetta hræðilega símtal aftur“
Bandaríkjamaðurinn Andrew Wagner segist hafa fyllst reiði þegar hann las fréttir um að Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, hefði ákveðið að hefja ferli til að milda dauðadóma allra 548 fanga á dauðadeild ríkisins.
Ákvörðunin reif upp gömul sár hjá Wagner, en náin vinkona hans var myrt með hrottalegum hætti fyrir 25 árum. Morðingi hennar var síðar dæmdur til dauða.
Wagner, sem starfar sem íþróttablaðamaður, var í líkamsræktarstöð og hafði tekið sér stutta pásu þegar hann rakst á fréttirnar á samfélagsmiðlinum X.
„Það sauð á mér af reiði,“ segir hann í samtali við New York Post. „Ein manneskja ákvað að ganga gegn niðurstöðum 548 kviðdóma.“
Newsom tilkynnti á fimmtudag að hann hygðist breyta dauðadómum allra 548 fanganna í ævilangt fangelsi án möguleika á reynslulausn. Ákvörðunin hefur þó ekki að fullu tekið gildi, enda þarf Hæstiréttur Kaliforníu að samþykkja breytingar á dómum 382 fanganna. Ríkisstjórinn hefur lengi barist gegn dauðarefsingum og stöðvaði aftökur í ríkinu árið 2019.
Rændu henni fyrir 450 dali og skáru hana á háls
Wagner segir að fréttirnar hafi samstundis minnt hann á eitt versta augnablik lífs hans, þegar honum var tilkynnt árið 2001 að Christina Burmeister, tvítug vinkona hans, hefði verið myrt í nágrenni Los Angeles.
„Þetta var eins og að fá þetta hræðilega símtal aftur. Nákvæmlega sama höggið í magann,“ segir hann. „Christina var yndisleg ung manneskja sem átti allt lífið fram undan.“
Burmeister var háskólanemi við Cal Poly Pomona og á leið í veislu þegar henni var rænt af James Dixon, eiginkonu hans, Markeishu, og manni að nafni Henry Singer.
Þremenningarnir neyddu hana til að taka út peninga úr tveimur hraðbönkum áður en þeir óku með hana á afvikinn stað uppi í fjöllum. Þar skar Dixon hana á háls og skildi hana eftir.
Ræningjarnir höfðu samtals 450 Bandaríkjadali upp úr krafsinu.
Dixon var dæmdur til dauða árið 2006 og hafði einnig verið fundinn sekur um tvær nauðganir sem tengdust ekki morðinu.
Rosalie Burmeister, móðir Christinu, sagði á sínum tíma að dauðadómurinn væri réttmæt refsing fyrir glæpinn. Hún taldi réttlætinu fullnægt.
Eins og þau hafi orðið fyrir árás á ný
Wagner hefur haldið nánum tengslum við fjölskyldu Burmeister í gegnum árin. Hann segir að fjölskyldan hafi verið í áfalli þegar henni bárust fréttir af ákvörðun ríkisstjórans.
„Allir eru í áfalli. Þeim líður eins og þau hafi orðið fyrir árás á nýjan leik. Hver veit hvort þessi náðun eigi eftir að ganga enn lengra?“
Newsom hefur varið ákvörðun sína með þeim rökum að dauðarefsingar samræmist ekki grunngildum Kaliforníuríkis.
Í rökstuðningi sínum segir hann að aftökur á vegum ríkisins grafi undan undirstöðum réttarkerfisins og dragi úr mannúð samfélagsins.
Wagner er ósammála og telur að með ákvörðuninni sé lítið gert úr starfi saksóknara og kviðdómenda, auk þess sem gengið sé gegn vilja kjósenda sem hafa áður hafnað afnámi dauðarefsinga.
„Þetta snýst ekki bara um að taka þessi skrímsli af lífi. Þau ættu að þurfa að lifa við sömu skelfingu og fórnarlömb þeirra, að vita að síðustu mínúturnar í lífi þeirra séu að renna upp,“ segir hann.
Hann segist einnig reiður yfir umræðu um að þyrma lífi fanganna.
„Ég sé fólk sífellt tala um að þyrma lífi þeirra og það gerir mig brjálaðan, því þessir 548 einstaklingar höfðu ekki þá sómatilfinningu að þyrma lífi annarra.“
Geymir enn síðasta miðann frá Christinu
Wagner og Burmeister kynntust í barnæsku í gegnum þýskan danshóp. Foreldrar þeirra voru vinir og með árunum myndaðist náin vinátta milli þeirra. Þau áttu um tíma í ástarsambandi en héldu áfram að vera bestu vinir þótt þau væru síðar í sambandi við aðra.
Þau töluðu reglulega saman í síma, oft tímunum saman, og skrifuðust á.
Í september síðastliðnum, þegar 25 ár voru liðin frá morðinu, afhenti danshópurinn vináttuverðlaun sem nefnd eru eftir Burmeister. Enn þann dag í dag geymir Wagner í veskinu sínu lítinn miða sem Christina rétti honum síðast þegar þau hittust.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗