Segir mönnum að fara ekki fram úr sér þrátt fyrir sögulega byrjun
Brighton er komið upp í annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á Brentford í gær. Pascal Gross, leikmaður liðsins, vill þó ekki heyra talað um titilbaráttu.
Brighton hefur farið frábærlega af stað og er með 22 stig eftir tíu leiki, fimm stigum á eftir toppliði Arsenal. Þetta er besta byrjun liðsins í efstu deild frá upphafi.
„Nei, við erum ekki í titilbaráttu. Við höfum byrjað tímabilið mjög vel en það er enn stutt liðið á það,“ segir Gross.
„Þegar maður horfir á úrvalsdeildina og úrslitin sér maður hversu litlu munar oft á liðunum. Við ætlum ekki að fara fram úr okkur.“
Brighton hefur meðal annars unnið Arsenal og Manchester City á tímabilinu. Liðið hefur skorað 26 mörk, fleiri en nokkurt annað lið í deildinni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗