Rekinn eftir hræðilegt gengi
Ítalska knattspyrnufélagið Sassuolo hefur ákveðið að reka Alberto Aquilani sem knattspyrnustjóra karlaliðs félagsins.
Aquilani tók við liðinu í sumar en Sassuolo er í sautjánda sæti ítölsku A-deildarinnar með átta stig eftir ellefu leiki. Þá hefur liðið tapað fimm leikjum í röð og sex af síðustu sjö.
Aquilani, sem er 42 ára gamall, hefur áður stýrt Pisa og Catanzaro í neðri deildum Ítalíu.
Hann átti langan leikmannaferil og lék 39 leiki og skoraði fimm mörk fyrir ítalska landsliðið.
Samkvæmt félagaskiptasérfræðingnum Fabrizio Romano mun Roberto D’Aversa taka við af Aquilani.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗