Vill svipta Hegseth embætti

Hegseth er sakaður um að heyja stríð með ólögmætum hætti án heimildar þingsins. AFP

Þingmaður Repúblikanaflokksins í fulltrúadeildinni lagði í dag fram tillögu um að ákæra Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, til embættismissis.

Kemur ákæran aðeins nokkrum dögum eftir að demókratar náðu yfirráðum yfir Bandaríkjaþingi með því að tryggja sér meirihluta bæði í öldungadeildinni og fulltrúadeildinni.

Repúblikanar halda stjórn á þinginu þar til nýkjörnir þingmenn taka við 3. janúar en ósigur þeirra hefur kynt undir ósætti innan flokksins.

Átta ákæruliðir

Thomas Massie, þingmaður repúblikana frá Kentucky-ríki, lagði fram tillögu um ákæru í átta liðum þar sem Hegseth er m.a. gefið að sök að heyja stríð með ólögmætum hætti án heimildar þingsins og að misnota vald sitt sem yfirmaður varnarmálaráðuneytisins.

Fulltrúadeildin þarf að taka málið til umfjöllunar innan tveggja daga, og er talið að það verði gert á miðvikudaginn. Sumir þingmenn úr flokki repúblikana hafa gefið til kynna að þeir kunni að styðja ákærurnar.

Verði ákæra til embættismissis samþykkt í fulltrúadeildinni yrði það áfall fyrir Hegseth og ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta en það myndi ekki sjálfkrafa svipta hann embætti.

Málið færi þá til öldungadeildarinnar, þar sem repúblikanar eru sömuleiðis með meirihluta fram til 3. janúar nk, en deildin myndi þá halda réttarhöld yfir Hegseth. Tveir þriðju öldungadeildarþingmanna þyrftu þá að greiða atkvæði með embættissviptingu, eða 67 þingmenn. 

Tillagan tekin fyrir innan tveggja þingdaga

Massie beitti sérstakri þingmeðferð til að neyða fulltrúadeildina til að taka tillögu hans fyrir innan tveggja þingdaga.

Forysta repúblikana gæti enn reynt að stöðva tillöguna með atkvæðagreiðslu um málsmeðferð.

Hakeem Jeffries, leiðtogi demókrata í fulltrúadeildinni, hefur lýst yfir stuðningi við ákæruna. „Ég segi afdráttarlaust já við tillögunni um Hegseth,“ segir Jeffries við ABC-fréttaveituna.

„Hinn svokallaði varnarmálaráðherra hefur misnotað vald sitt, grafið undan þjóðaröryggi okkar og staðið fyrir þessu ábyrgðarlausa og kostnaðarsama stríði í Íran,“ segir hann jafnframt.

Þyrftu verulegan stuðning repúblikana

Samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna getur fulltrúadeildin ákært háttsettan embættismann til embættismissis með einföldum meirihluta, sem jafngildir í raun formlegri ákæru um alvarlegt misferli.

Öldungadeildin ákveður síðan hvort sakfella eigi embættismanninn og svipta hann embætti en til þess þarf stuðning tveggja þriðju viðstaddra öldungadeildarþingmanna.

Jafnvel með nýfengnum meirihluta á næsta ári þyrftu demókratar verulegan stuðning repúblikana til að ná þeim þröskuldi.

Demókratar hafa nú þegar tryggt sér 54 öldungadeildarþingmenn og eygja von um að bæta tveimur til viðbótar þegar talningu lýkur í Alaska og Mississippi. En jafnvel þó það markmið næðist þyrftu ellefu repúblikanar í öldungadeildinni að snúast á sveif með demókrötum til þess að svipta Hegseth embætti.

Bitur sýndarmennska

Hegseth hefur vísað ákærutilraun Massies á bug sem sýndarmennsku og sagt þingmanninn vera bitran.

Trump hefur opinberlega staðið með varnarmálaráðherra sínum og lýsti því yfir í síðustu viku: „Ég hef fullan hug á að halda honum.“

Aðeins tveir ráðherrar hafa verið ákærðir til embættismissis í sögu Bandaríkjanna og hvorugur var sviptur embætti af öldungadeildinni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅