Vilja vindmæli Veðurstofunnar

Vindmæli vantar frá Veðurstofunni á Borgarfjörð eystri.

Vindmæli vantar frá Veðurstofunni á Borgarfjörð eystri. mbl.is/Golli

Heimastjórn Borgarfjarðar eystri óskar eftir bættum tækjakosti til veðurmælinga við þorpið Bakkagerði í firðinum.

Hitastig og úrkomumagn er mælt í veðurstöð sem situr rétt fyrir ofan þorpið en enginn vindhraðamælir er þar til staðar. Úr því vilja heimamenn bæta með hjálp Veðurstofu Íslands.

„Heimastjórn fer hér með þess á leit við Veðurstofuna að settur verði upp vindhraðamælir á Borgarfirði,“ segir í fundargerð heimastjórnarinnar frá 5. nóvember.

Tillagan var samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅