Pípulagningamenn sakaðir um hundruð milljóna króna svik
Þrír Pólverjar með íslenska kennitölu eru sakaðir um meiriháttar brot á skattalögum í rekstri fyrirtækisins Smartlagna ehf. sem varð gjaldþrota og er nú afskráð. Fyrirtækið sinnti pípulagningaþjónustu.
Meint skattsvik nema um 200 milljónum króna og ábyrgðin deilist milli ákærðu eftir tímabilum þeirra í ábyrgðarstöðu í fyrirtækinu. Robert Andrzej Knasiak, fimmtugur að aldri, var daglegur stjórnandi fyrirtækisins yfir allt meint brotatímabilið, Bartosz Knasiak, sem er 42 ára gamall, var skráður stjórnarmaður í fyrirtækinu fram til 12. maí 2023, og Filip Aleksander Kondracki, sem er 41 árs, var skráður framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúruhafi, frá 12. maí 2023.
Þeir eru ákærðir fyrir að hafa ekki staðið skil á skilagreinum félagsins vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á lögmæltum tíma vegna greiðslutímabilanna ágúst, rekstrarárið 2020, og apríl rekstrarárið 2023, og ekki staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins, greiðslutímabilin apríl til og með júní, ágúst til og með október og desember rekstrarárið 2020, janúar, apríl og október rekstrarárið 2021, apríl til og með júní, september, nóvember og desember rekstrarárið 2022, og janúar til og með september rekstrarárið 2023.
Vanskilin nema rúmlega 67 milljónum hvað snertir Robert, rúmlega 51 milljón hvað varðar Bartosz og um 15 og hálfri milljón hvað varðar Filip.
Vangreiddur virðisaukaskattur upp á 80 milljónir
Í annan stað eru mennirnir sakaðir um að hafa ekki skilað til ríkissjóðs virðisaukaskatti sem innheimtur var, eða þeim bar að innheimta samkvæmt lögum, frá nóvember-desember rekstrarárið 2022 til og með maí – júní rekstrarárið 2023.
Samtals nema þessi vanskil rúmlega 39 milljónum hvað varðar Robert, 23 milljónum hvað varðar Bartosz og rúmlega 16 milljónum hvað snertir Filip.
Málið er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og var þingfest um miðjan október síðastliðinn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗