Tíðinda að vænta frá London
Arsenal er nálægt því að ganga frá nýjum samningum við þrjá lykilmenn liðsins, þá Martin Ödegaard, Declan Rice og Jurrien Timber.
Enskir miðlar segja viðræður við leikmennina hafa gengið vel og er vonast til að allir þrír skrifi undir nýja samninga fyrir jól.
Ödegaard, sem er fyrirliði Arsenal, hefur meðal annars verið orðaður við Bayern Munchen en Norðmaðurinn er ánægður hjá félaginu og hefur engan áhuga á að fara samkvæmt nýjustu fréttum.
Rice er þá einn allra besti leikmaður heims og hvað mikilvægasti leikmaður Arsenal. Mikilvægi Timber fyrir Englandsmeistarana er einnig mikið.
Allir þrír eru samningsbundnir Arsenal til ársins 2028 en félagið vill tryggja sér krafta þeirra til lengri tíma.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗