Höfn verði áfangastaður framtíðar

Ljósaskiptin á líflegum veitingastöðum við höfnina. Svona gæti framtíðin orðið á Höfn í Hornafirði. Mynd/Landsbyggð

„Uppbygging nýs miðbæjar hér mun breyta miklu fyrir staðinn. Höfn fær nýjan svip; bær sem í dag er áningarstaður margra en gæti orðið, ef vel tekst til, áfangastaður þar sem ferðafólk staldrar við í nokkra daga og nýtur þess sem býðst hér um slóðir,“ segir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Hornafirði.

Bæjarstjórn Hornafjarðar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að efna til ráðgefandi íbúakosningar um fyrirhugaðan samning sveitarfélagsins við Landsbyggð ehf. vegna uppbyggingar á nýjum miðbæ á Höfn. Þessi háttur er hafður á þar sem deiliskipulagið á eftir að fara í gegnum lögformlegt ferli þar sem mikilvægt er að geta brugðist við athugasemdum. Bæjarstjórn hefur þó tekið af allan vafa um að niðurstaða kosninganna verði virt. Ef vilji íbúa stendur til þess að bæjarstjórn samþykki samning við Landsbyggð fer deiliskipulagið áfram í lögformlegt ferli. Ef ekki verður ekki lengra haldið.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅