Auði var slaufað úr vinahópnum eftir pistil um forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur – „Baktölum hana. Hún er ógeð“
Pistill sem Auður Jónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, birti í Heimildinni vorið 2024, dró dilk á eftir sér og reyndist henni mjög afdrifaríkur. Í pistlinum birtist gagnrýnin sýn á forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur og stuðninginn við framboðið. Auður hélt því fram að framboð Katrínar einkenndist af elítisma og að baki henni sameinuðust menningarlegt vald, fjármálalegt vald og vald sjálfs valdakerfisins:
„Þegar menningarlegt vald, vald fjármagns og vald sjálfs valdakerfisins leggjast saman í eina sæng gefst ekki lengur eðlilegt andrými til skoðanaskipta eða átaka. Veruleikinn verður: Hinir voldugu andspænis hinum valdaminni- og lausu,“ skrifaði Auður og hlaut bágt fyrir. Skrifin urðu til þess að fjölmargir vinir Auðar sneru baki við henni, hættu að tala við hana, hættu jafnvel að virða hana viðlits og fóru að baktala hana af mikilli hörku og rætni. Ljóst er að langt því frá er þarna gróið um heilt ef marka má nýjan, langan pistil Auðar á Facebook-síðu hennar, þar sem hún gerir upp þessi átök.
Árið 2024 var erfitt hjá Auði, sem missti föður sinn, fór í gegnum erfið sambandsslit og glímdi við fátækt og vinnuálag. Eftir að pistillinn umdeildi um forsetaframbjóðandann vinsæla birtist missti hún síðan vinina en annað fólk kom henni til bjargar:
„En að vináttunni. Í kjölfar alls þessa. Þessa hræðilega árs, eins og það er í minningunni. Andlát pabba, erfið sambandsslit, svo mikil fátækt að ég gladdist þegar sonur minn var hjá pabba hans um jólin því ég átti ekki krónu sjálf til að preppa jól, búin að þurfa að flytja fjórum sinnum út af bágum leigumarkaði. Og svo um vorið hverfa nánar vinkonur – sem höfðu aftur snúið inn í líf mitt eftir skilnaðinn eins og makar, stöðugt í lífi mínu. Þær hurfu úr lífinu út af pistlaskrifunum um forsetakosningar, ásamt fleira fólki, og um leið verkefni sem ég hafði verið að vinna að með því, svo margir mánuðir af vinnu og forgangsröðun þeirra gufuðu launalaust upp. Ég fann að ég mætti fordæmingu víða út af því, í voldugri kreðsu, með ítök víða og félagslega hagsmuni.
Þá birtist fólk sem hjálpaði mér að verða aftur ég. Sumt af því hafði verið þarna allan tímann, það bara kom styrkar inn í líf mitt, um leið og aðrir hurfu. Og nýtt fólk birtist, eins og lífið hefði sent það til mín, ekki margir en fólk sem á það sameiginlegt að vera svo styrkt og djúpviturt. Lífsreynt, góðhjartað, gáfað. Þetta fólk veit hvert það er.
Og ólíklegasta fólk sýndi mér líka tryggð, jafnvel þó að það tefldi á tvær hættur með það í sínum félagskjarna. Ég kynntist fólki upp á nýtt. Sá það, öðruvísi en áður. Sá það sem amma mín hafði sagt mér, að steikja fiskibollur stuttu eftir að afi dó. Án þessa fólks, sem greip mig, held ég að ég hefði átt erfitt með að lifa þennan tíma af. Ég hélt mér gangandi af því að ég á son.“
Var útmáluð sem andlega vanheil
„Stundum hugsa ég til þeirra sem höfðu viljað vera svo miklir vinir mínir, allt þar til þessi blessaði forsetapistill birtist, gagnrýni á framboð vinamargs frambjóðanda. Hugsa: Vissu þau ekki hver ég var? Ég hef skrifað leitandi og ögrandi pistla síðan ég var 23 ára. Í allskonar fjölmiðla. Látið allskonar gossa og leikið mér. Eitthvað sem þeim fannst líklega kúl, þar til einn pistllinn snerti á einhverju heilögu. Og þá var ordran: Auður er skíthæll og klikkuð. Hættum að umgangast hana. Baktölum hana. Hún er ógeð.“
Auður segir að rætið baktal um hana hafi grasserað á þessum tíma og hún verið útmáluð sem andlega vanheil:
„Stuttu eftir að þessi pistill birtist hringdi systir mín í mig og annar gamalreyndur vinur og sögðu bæði: Passaðu þig, núna er verið að útmála þig eins og þú sért ekki andlega heil. Og það var verið að því, ég heyrði það á öllu því sem barst mér til eyrna, sjálf í nokkra mánuði að labba hliðargötur. Eða bara halda mig fyrir sjálfa mig, þakklát eins og barn ef ég fann vinaþel, því svo margir virtust fordæma mig. Samt voru það ekki margir, bara hópur sem ég þekkti svo vel, þó margir úr honum. Sumarið eftir pistilinn þorði ég varla að tala við fólk að fyrrabragði, beið eftir að það talaði við mig. Lömuð af kvíða og ótta.“
Slaufun er hræðileg
Auður segist hafa fundið á eigin skinni hvað slaufun er hræðileg, hvað það er skelfilegt að lenda í henni:
„Hún er tæki sem er alltof mikið notið í örsamfélagi, og kaldhæðnislegt að hugsa til þess hvernig sumar af þessum fyrrum vinkonum voru stöðugt að hvetja mann til að loka á aðra. Hættu að tala við hann/hana. Lokaðu bara á hana/hann. Og svo varð maður fyrir því sjálfur, á endanum, þó bara í einni kreðsu sem maður átti hvort sem er ekki heima í.“
Vægðarleysi slaufunar sé algjört og hún sé notuð sem vopn, vopn sem geti orðið banvænt.
„En ennþá eru stöðugir triggerar sem geta keyrt mig út af sporinu þegar síst skyldi. Maður opnar netið, sér eitthvað, les. Sér fólk sem var áður svo náið, sem maður heyrir reglulega af að baktali mann eftir þennan pistil, fær að heyra hvað það sagði hér og þar, og dettur ofan í líðan sem er ekki góð. Stundum svartnætti, allt í einu lamast maður og getur ekki unnið, getur ekkert nema bara fundið sársauka. Veit að maður getur aldrei leiðrétt eitthvað svo eitrað, það verður alltaf skotið til baka. Verður alltaf flækingslegt, óskiljanlegt. Tráma.“
Pistilinn í heild má lesa með því að smella á tengilinn hér að neðan.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗