Haukar þægilega áfram þrátt fyrir tap

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði sjö mörk.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði sjö mörk. mbl.is/Ólafur Árdal

Haukar eru komnir áfram í 16-liða úrslit Evrópubikars kvenna í handbolta þrátt fyrir tap gegn RK Levalea 2010 Niksic frá Svartfjallalandi, 27:24, í seinni leik liðanna á Ásvöllum í kvöld. 

Fyrri leikurinn fór einnig fram á Ásvöllum í gærkvöldi og þar unnu Haukar 18 marka sigur, 42:24, og fara því örugglega áfram. 

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var enn einu sinni markahæst hjá Haukum með sjö mörk. Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoraði þá sex. 

Haukar höfðu unnið alla leiki sína á tímabilinu hingað til og var þetta því fyrsta tap liðsins. 

Leikirnir í 16-liða úrslitum verða í byrjun næsta árs. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅