Lögregla rannsakar veikindi eftir hálfmaraþon
Að minnsta kosti 19 leituðu á sjúkrahús eftir hálfmaraþon í Santa Barbara í Kaliforníu viku síðar. Myndin tengist fréttinni ekki beint. AFP/Kena Betancur
Að minnsta kosti 19 þátttakendur í hálfmaraþoni í Santa Barbara í Kaliforníu leituðu á sjúkrahús eftir hlaupið á sunnudaginn.
Nokkrir hlauparar voru með svipuð einkenni en orsök veikindanna hefur ekki verið staðfest. Lögregla rannsakar málið.
Í yfirlýsingu frá heilbrigðisfyrirtækinu Cottage Health, sem rekur sjúkrahúsin sem tóku á móti hlaupurunum, segir að óvenjumargir þátttakendur hafi leitað á bráðamóttöku eftir hlaupið. Verið sé að kanna hvort veikindin megi rekja til hita eða annarra þátta.
David Monico, framkvæmdastjóri hlaupsins, sagði í samtali við Los Angeles Times að 15 þeirra sem fluttir voru á sjúkrahús hefðu þjáðst af hitaörmögnun en enginn þeirra verið alvarlega veikur.
Um 7.500 manns tóku þátt í hlaupinu. Drykkjarstöðvar voru með reglulegu millibili á leiðinni þar sem boðið var upp á vatn, orkudrykki og orkugel.
Lögregla hefur óskað eftir upplýsingum frá þátttakendum sem fundu fyrir óvenjulegum einkennum eftir hlaupið. Hún áréttar að orsök veikindanna sé enn óljós og hvetur þá sem finni til vanlíðanar til að leita læknisaðstoðar.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗