Góðar og slæmar fréttir fyrir Ísland

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir.

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir. Ljósmynd/Alex Nicodim

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir er meidd og verður að öllum líkindum ekki með íslenska landsliðinu í leikjunum tveimur gegn því portúgalska í úrslitum umspilsins um sæti á HM í Brasilíu. 

Ísland mætir Portúgal heima og ytra í lok þessa mánaðar og byrjun næsta en Emilía var ekki með liði sínu RB Leipzig í 3:1-tapi liðsins fyrir Köln í þýsku Bundesligunni í fótbolta í kvöld. 

Samkvæmt miðlinum Leipzig Volkszeitung er Emilía meidd og verður frá næstu vikurnar en Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari tilkynnir hópinn á fimmtudaginn. 

Sædís Rún Heiðarsdóttir var aftur á móti í leikmannahópi Kölnar í fyrsta sinn síðan í ágúst og gæti því náð landsleikjunum. 

Sædís Rún Heiðarsdóttir.

Sædís Rún Heiðarsdóttir. mbl.is/Karítas

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅