Lést í bílslysi - Senda frá sér yfirlýsingu og segjast í áfalli

Michael Cruickshank, 34 ára skoskur knattspyrnumaður, lést í bílslysi á fimmtudaginn.

Cruickshank lék með Broughty Athletic í neðri deildunum í Skotlandi en félagið frestaði leik sínum gegn Dundee North End á laugardaginn vegna andlátsins.

„Það er með mikilli sorg sem við tilkynnum skyndilegt fráfall bakvarðarins Michael Cruickshank. Hann var afar vinsæll og virtur innan leikmannahópsins og hans verður sárt saknað,“ segir í yfirlýsingu Broughty.

Fjöldi fyrrum knattspyrnufélaga hans hefur minnst Cruickshank einnig. Kevin Mackie, stjórnarformaður Brechin City, segir til að mynda að allir hjá félaginu séu í áfalli.

„Michael var einstakur maður. Orka hans, jákvæðni og hlýja skiptu fólkið í kringum hann gríðarlega miklu máli. Hans verður sárt saknað,“ segir Mackie.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅