Sextán látnir eftir sprengingu í stálverksmiðju
Sextán manns létust og þrettán slösuðust í vesturhluta Tyrklands í dag þegar sprenging varð í stálverksmiðju.
Þetta kom fram í ávarpi Recep Tayyips Erdogans Tyrklandsforseta.
Þá tilkynnti hann jafnframt að til standi að rannsaka tildrög slyssins með það að marki að leiða í ljós hvort um vanrækslu hafi verið að ræða.
Einn helsti stálframleiðandi Tyrklands
Sprengingin varð í HABAS-stálverksmiðjunni en HABAS er samsteypa í einkaeigu og er einn helsti stálframleiðandi Tyrklands.
Sprengingin á að hafa orðið þegar loftkrani hrundi ofan í stóran iðnaðarofn sem notaður er við steypingu fljótandi stáls og hafa sjónarvottar tekið svo til orða að umfang sprengingarinnar minnti á jarðskjálfta eða sprengju.
Þeir sem urðu fyrir slysinu eru allir sagðir vera starfsmenn verksmiðjunnar.
Öryggismálum hefur lengi verið ábótavant
Samtök launafólks í Tyrklandi hafa mörg hver sagt að öryggismálum hjá stálframleiðandanum hafi lengi verið ábótavant og hefur framleiðandinn hingað til neitað að tjá sig um málið.
Tyrkneska dagblaðið Evrensel greindi frá því að fyrir sprenginguna í dag hefðu að minnsta kosti ellefu starfsmenn látið lífið við störf þar síðasta áratuginn.
Þá sagði Verkamannaflokkur Tyrklands á samfélagsmiðlareikningi sínum að þetta væri í þriðja sinn á þremur vikum sem starfsmenn létu lífið við störf þar.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗