Veigar Páll snýr aftur í Stjörnuna

Veigar Páll Gunnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Stjörnunni.

Stjarnan tilkynnti þetta í kvöld og mun hann aðstoða Rúnar Pál Sigmundsson, sem tók við liðinu á nýjan leik á dögunum.

Veigar Páll og Rúnar Páll þekkjast vel. Veigar var leikmaður þegar Rúnar gerði liðið að Íslandsmeisturum 2014 og unnu þeir bikarmeistaratitil þegar Veigar var í þjálfarateyminu nokkrum árum síðar.

Tilkynning Stjörnunnar

Veigar Páll Gunnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Stjörnunni.

Veigar Páll er Stjörnufólki vel kunnur. Hann og Rúnar Páll störfuðu saman hjá félaginu á árunum 2018–2019 og fögnuðu bikarmeistaratitli með liðinu á þeim tíma. Nú taka þeir upp samstarf að nýju í Garðabæ.

„Það er góð tilfinning að vera kominn aftur í Stjörnuna. Ég hlakka til að hitta strákana og hefja störf. Það býr mikið í þessum hópi og við ætlum að byggja á þeim góða grunni sem þegar er til staðar. Við viljum spila fótbolta sem Garðbæingar geta verið stoltir af og ég hlakka til að sjá ykkur í stúkunni“, segir Veigar Páll.

Veigar Páll kemur með dýrmæta reynslu og þekkingu inn í þjálfarateymið. Við hlökkum til að vinna með honum að áframhaldandi uppbyggingu liðsins og þróun leikmanna.

Velkominn aftur, VPG#10

SKÍNI STJARNAN

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅