Stóra stunumálið og klossakonan – Ótrúlegar nágrannaerjur rifjaðar upp

Háværir ástarleikir, síendurtekið ónæði og nágrannar sem gera öðrum íbúum lífið leitt eru meðal þeirra mála sem Húseigendafélagið hefur þurft að takast á við í gegnum tíðina.

Í athyglisverðri aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag fjallar Birkir Snær Brynleifsson, laganemi hjá félaginu, um hversu langt nágrannaerjur þurfa að ganga áður en hægt er að krefjast þess að íbúðareigandi selji eign sína og flytji. Hann rifjar meðal annars upp eftirminnilegt mál úr Kópavogi þar sem háværir ástarleikir gerðu nágrönnum lífið leitt.

„Við könnumst öll við svarta sauðinn í húsfélaginu. Nágrannann sem er ekki samvinnuþýður, veldur fólki ama og almennum óþægindum eða er kannski bara leiðinlegur. En hvað þarf að koma til svo hægt verði að neyða slíka sauði til þess að selja eignir sínar og flytja úr félagsskap skemmtilega fólksins,“ spyr Birkir í grein sinni og bætir við að stutta svarið sé að það sé ekki nóg að vera leiðinlegur, meira þurfi að koma til.

Hann bendir á að heimild til þess að neyða fólk til að selja eign sína sé að finna í 55. grein laga um fjöleignarhús.

„En hvað þarf að koma til svo hægt sé að beita slíkri heimild? Hér verður farið yfir dæmi sem hafa ratað á borð Húseigendafélagsins nýlega.“

Stóra stunumálið í Kópavogi

Eitt þeirra mála sem Birkir fjallar um snýr að háværum ástarleikjum í fjölbýlishúsum. Hann bendir á að almennt verði fólk að geta notið ástarlífs síns í friði, svo lengi sem gætt sé meðalhófs og nágrönnum sýnd tillitssemi.

Stundum geti þó gengið svo langt að óp og stunur verði öðrum íbúum til verulegs ama.

Í þessu samhengi rifjar hann upp eftirminnilegt mál sem kom á borð Húseigendafélagsins fyrir aldamót og segir að hafi í raun sett Kópavog á kortið sem „Amsterdam Norður-Atlantshafsins“.

„Stóra stunumálið sem DV fjallaði um á sínum tíma er eitt af þessum öfgakenndu jaðartilvikum sem sanna undantekninguna frá meginreglunni. Nágrannar þessara kynlífsunnenda líktu látunum við barnsgrát og spangól í hundi. Ástarleikarnir voru þrír á dag og stóðu yfir í þrjá tíma í senn og hafði þetta gengið svona áfram í sjö mánuði,“ rifjar Birkir upp.

Hann segir að þótt tæplega verði settar sérstakar reglur um hvenær og hversu lengi fólk megi stunda kynlíf á heimilum sínum verði engu að síður að gæta hófs og taka tillit til nágrannanna.

„Enda ber að hafa í huga að eins manns gólf er annars manns þak,“ skrifar Birkir.

Klossakonan gerði nágrönnunum lífið leitt

Annað eftirminnilegt mál sem Birkir rifjar upp er mál hinnar svokölluðu klossakonu sem gerði nágrönnum sínum lífið leitt árum saman.

Að sögn Birkis gekk konan um í klossum langt fram á nótt og virðist tilgangurinn hafa verið að valda nágrönnunum sem mestu ónæði.

„Nágrannar klossakonunnar höfðu þurft að þola það árum saman að hún þrammaði kirkjugólfin langt fram á nótt,“ skrifar hann.

En klossakonan lét ekki þar við sitja. Hún barði einnig í handrið stigagangsins með verkfæri og skildi útidyr hússins eftir opnar til að hleypa óboðnum gestum inn.

Birkir segir slíka nágranna sem betur fer sjaldgæfa, en bendir á að jafnvel þolinmóðasta fólk eigi sín þolmörk. Konan hafi þó fengið að halda uppteknum hætti árum saman áður en gripið var til aðgerða.

Má neyða nágranna til að selja íbúðina?

Samkvæmt lögum um fjöleignarhús er í alvarlegum tilvikum hægt að krefjast þess að íbúðareigandi selji eign sína og flytji úr húsinu. Slíkt kemur þó aðeins til greina þegar um gróf eða ítrekuð brot er að ræða.

Almennt þarf fyrst að senda viðkomandi skriflega aðvörun. Láti hann sér ekki segjast getur húsfélagið gripið til frekari aðgerða, sem geta að lokum leitt til lögsóknar og jafnvel nauðungarsölu.

Til þess að húsfélag geti samþykkt slíkar aðgerðir þarf jafnframt samþykki að minnsta kosti tveggja þriðju hluta eigenda, bæði miðað við fjölda þeirra og eignarhluta.

Birkir leggur áherslu á að um neyðarúrræði sé að ræða og að dómstólar geri ríkar kröfur til sönnunar.

Hann segist ekki vita til þess að gripið hafi verið til svo íþyngjandi úrræðis vegna háværra ástarleikja.

Þótt nágrannar eigi erfitt með að koma sér saman sé það eitt og sér ekki næg ástæða til að krefjast brottflutnings.

„Eins og undirritaður hefur áður nefnt er nefnilega heimilt að vera leiðinlegur,“ skrifar Birkir og minnir á að réttinum til að njóta eigin heimilis fylgi sú skylda að virða sama rétt nágrannanna.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅