„Ég veit ekki hvar hann fær þessa 130 milljarða“
Kostnaðarmat á Sundabraut er um 140-160 milljarðar króna. Útboð hefur ekki farið fram og ekki liggur fyrir hvort ráðist verði í gerð jarðganga eða brúar. Um þetta á eftir að koma fram skipulagstillaga frá Reykjavíkurborg.
Þetta sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins spurði hvernig innviðaráðherra skýrði það að kostnaðarmat Sundabrautar og nýrra Hvalfjarðarganga hefði á fimm mánuðum farið úr 130 milljörðum í 200, en Bergþór vildi meina að ráðherrann hefði talað um 130 milljarða í maímánuði þessa árs, sem Eyjólfur kannaðist ekki við.
„Ég veit ekki hvar hann fær þessa 130 milljarða en, Guð minn góður, ef ég hef nefnt 130 milljarða þá er það spurning um það: Verða göng eða brú? Það er það sem skiptir máli,“ sagði hann.
„Það getur enginn kostnaðarmetið það“
„Það getur enginn kostnaðarmetið það hversu Sundabraut á að vera dýr því við vitum ekki einu sinni hvort það verða göng eða brú,“ hélt Eyjólfur áfram. Kostnaður við framkvæmdirnar væri mismunandi.
„Þannig að ég get ekki annað en svarað þessu bara þannig. Það liggur ekki fyrir nákvæmlega hvað kostnaðarmatið er vegna þess að við vitum ekki nákvæmlega hvernig framkvæmdin verður, hvort það verði 20 metra há brú eða 30 metra há brú eða jarðgöng og hvar þau koma upp o.s.frv.,“ sagði hann.
„Það liggur hins vegar fyrir að það er búið að gera samning um ráðgjöf sem er greinilega byggður á miklum misskilningi í fjölmiðlum, það er það að félagið [Göng og brú] sjálft er að taka ákvörðun sem sérfélag um að kaupa sér ráðgjöf úti í bæ,“ sagði ráðherrann að lokum og vísaði í umdeilda 20 milljarða króna ráðgjöf vegna gerðar Sundabrautar og nýrra Hvalfjarðarganga.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗