Veigar Páll snýr aftur til Stjörnunnar

Veigar Páll Gunnarsson.

Veigar Páll Gunnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta.

Þetta tilkynntu Stjörnumenn í kvöld en Veigar Páll mun aðstoða Rúnar Pál Sigmundsson sem tók nýverið við liðinu á nýjan leik.

Veigar Páll er einn besti leikmaður í sögu Stjörnunnar en hann lék undir stjórn Rúnars Páls þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrsta og hingað til eina sinn árið 2014. Þeir störfuðu síðan saman frá 2018-2019 en Stjarnan varð bikarmeistari á þeim tíma.

„Það er góð tilfinning að vera kominn aftur í Stjörnuna. Ég hlakka til að hitta strákana og hefja störf. Það býr mikið í þessum hópi og við ætlum að byggja á þeim góða grunni sem þegar er til staðar. Við viljum spila fótbolta sem Garðbæingar geta verið stoltir af og ég hlakka til að sjá ykkur í stúkunni,“ er haft eftir Veigari Páli við undirskriftina.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅