Íslenski sendiherrann: „Náttúrlega mikið áfall“
Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Varsjá, segir að Pólverjum sé brugðið eftir voðaverkin sem urðu í borginni Kraká á laugardag þar sem árásarmaður keyrði inn á fjölfarið torg og hóf þar skothríð. Sex létust og 15 særðust.
Fyrir árásina hafði maðurinn, hinn 24 ára Michal Oksinski, myrt foreldra sína og systur.
Voðaverkin eru rannsökuð sem hryðjuverk og var tveggja daga þjóðarsorg lýst yfir í Póllandi í gær.
Samkennd og samstaða
„Þetta var náttúrlega mikið áfall þegar þetta gerðist á laugardaginn. Þjóðinni, eins og hún leggur sig, var illa brugðið. En eins og gerist stundum í kjölfar svona atburða varð strax vart við mikla samkennd og samstöðu,“ segir Friðrik spurður hvernig andrúmsloftið er í Póllandi.
„Einhvers staðar á pólitísku köntunum byrjuðu menn þó að nýta sér atburðina og fengu strax á sig gagnrýni fyrir það. Menningarmálaráðherrann hefur meðal annars lagt fram formlega kvörtun á hendur mjög hægrisinnaðri sjónvarpsstöð sem birti afar ósmekklegt efni í kjölfar atburðanna.“
Sjálfur var Friðrik nærri aðaljárnbrautarstöðinni í Varsjá þegar fregnir bárust af voðaverkunum í Kraká um fjögurleytið á laugardaginn.
„Þá mátti sjá að lögreglan í Varsjá var mjög áberandi á ferli og augljóslega á varðbergi,“ segir hann.
Safnað fyrir lögreglumennina
Þá segir Friðrik fólk almennt áhyggjufullt yfir líðan þeirra sem særðust, sérstaklega lögreglumannanna tveggja sem brugðust við og reyndu að stöðva árásarmanninn í mikilli hetjudáð.
„Söfnun var strax sett af stað fyrir þá og ég held að hún sé komin í nálægt tvö hundruð milljónum íslenskra króna,“ segir Friðrik.
Einnig var farið af stað með blóðsöfnun fyrir annan lögreglumanninn, sem er í sjaldgæfum blóðflokki.
„Viðbrögðin voru slík að blóðbankarnir fylltust af blóði. Þannig að samkenndin og samstaðan eru mikil. Tveimur sorgardögum var lýst yfir í gær, sem gilda í gær og í dag. Það verður svo áhugavert að sjá hvort þjóðhátíðardagurinn á miðvikudaginn, 11. nóvember, muni einnig litast af þessum atburðum,“ segir Friðrik.
„Ég sá meðal annars að einn leiðtogi stjórnarandstöðunnar kallaði eftir því að fyrirhuguðum mótmælagöngum yrði frestað af tillitssemi við aðstæður.“
Öruggt að ferðast til Póllands
Kraká er mikil ferðamanna- og menningarborg. Þar var öllu lokað á laugardaginn og svæðið í kringum torgið var ekki opnað aftur fyrr en um sexleytið í gær.
Friðrik segir hins vegar enga ástæðu fyrir fólk til að hika við að ferðast til Póllands og að landið sé öruggur staður eftir sem áður.
„Sem betur fer virðist þetta hafa verið einstakur atburður að því leyti að einn maður var að verki. Það er því ekki ástæða til að veigra sér við að koma til Póllands eða neitt slíkt,“ segir hann og rifjar upp að hann bjó í Washington í Bandaríkjunum þegar árásin á tvíburaturnana átti sér stað 11. september 2021.
„Um tíu dögum síðar var ég að fá fólk í heimsókn sem hafði samband og spurði hvort það væri óhætt að koma. Ég svaraði því til að ég héldi að það hefði aldrei verið öruggara að koma til Washington en einmitt þá,“ segir hann.
„Í kjölfar svona atburða verður öryggisvitundin auðvitað miklu meiri. Bæði almenningur og yfirvöld, öryggissveitir og lögregla, verða meira meðvituð um aðstæður.“
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗