Senda starfsmönnum tölvupóst vegna Fantasy-leiksins

Chelsea hefur varað starfsmenn sína við því að leka óvart upplýsingum um liðið í gegnum Fantasy-leikinn vinsæla.

Þetta kemur í kjölfar þess að Joao Pedro missti óvænt af 2-0 tapi gegn Tottenham vegna meiðsla. Fyrir leikinn höfðu nokkrir starfsmenn Chelsea, sem og Morgan Rogers leikmaður liðsins tekið Pedro úr Fantasy-liðum sínum.

Þessar breytingar vöktu athygli þar sem Chelsea hafði ekki tilkynnt um meiðsli Pedro. Því vaknaði grunur um að menn hefðu nýtt sér innherjaupplýsingar.

Samkvæmt BBC hefur Chelsea nú sent starfsmönnum tölvupóst þar sem þeir eru minntir á að breytingar á Fantasy-liðum þeirra geti óvart komið upp um meiðsli og aðrar upplýsingar.

Chelsea ætlar þó ekki að setja frekari takmarkanir á þátttöku starfsmanna í Fantasy.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅