Vill vera áfram hjá Liverpool

Alisson er einn besti markvörður heims.

Alisson er einn besti markvörður heims. AFP/Glyn Kirk

Brasilíski markvörðurinn Alisson Becker vill vera áfram hjá enska knattspyrnufélaginu Liverpool.

Þetta sagði hann í samtali við Sky Sports eftir 3:1-útisigur Liverpool á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í gær. Alisson fór á kostum í leiknum og varði sex skot.

Samningur Alisson rennur út næsta sumar en hann er 34 ára gamall. Brasilíumaðurinn hefur verið á meðal bestu markvarða í heimi síðan hann gekk í raðir Liverpool sumarið 2018. Síðan þá hefur hann tvívegis unnið ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu.

Juventus reyndi að fá leikmanninn í sínar raðir síðasta sumar en Liverpool ákvað að halda honum.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅