Vill vera áfram hjá Liverpool
Brasilíski markvörðurinn Alisson Becker vill vera áfram hjá enska knattspyrnufélaginu Liverpool.
Þetta sagði hann í samtali við Sky Sports eftir 3:1-útisigur Liverpool á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í gær. Alisson fór á kostum í leiknum og varði sex skot.
Samningur Alisson rennur út næsta sumar en hann er 34 ára gamall. Brasilíumaðurinn hefur verið á meðal bestu markvarða í heimi síðan hann gekk í raðir Liverpool sumarið 2018. Síðan þá hefur hann tvívegis unnið ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu.
Juventus reyndi að fá leikmanninn í sínar raðir síðasta sumar en Liverpool ákvað að halda honum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗