Sagðir svartsýnir á friðarviðræður

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti. AFP

Úkraínumenn eru sagðir svartsýnir á friðarviðræður þeirra og Rússa sem hefjast á morgun í Abú Dabí. Bandaríkjamenn munu hafa milligöngu um viðræðurnar.

Þetta segir úkraínski stjórnmálafræðingurinn Volodimír Fesenko við AFP-fréttaveituna.

Þá segir hann að úkraínsk yfirvöld muni reyna að þrýsta á vopnahlé að hluta eða á afmörkuðum svæðum en rússnesk yfirvöld hafa hingað til hafnað víðtækara vopnahléi.

Ekki að sjá framlag af hálfu Rússa

Johann Wadephul utanríkisráðherra Þýskalands sagði í dag að í ljósi áframhaldandi árása Rússa á borgaralega innviði Úkraínu væri ekki að sjá umtalsvert framlag af hálfu Rússa til þess að samningaviðræðurnar nái skriði.

Fulltrúar Evrópuþjóða munu einnig taka þátt í viðræðunum en hlutverk þeirra í viðræðunum liggur þó ekki fyrir.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hefur sagst hafa samræmt afstöðu sína við fulltrúa Evrópusambandsins fyrir viðræðurnar.

Áhyggjuraddir á lofti

Áhyggjuraddir eru á lofti um að Donald Trump Bandaríkjaforseti muni sneiða hjá hagsmunum Evrópu í viðræðunum.

Hann hefur áður sagt stórt samkomulag við Rússa í sjónmáli sem nái ekki aðeins til Úkraínu heldur hugsanlega allrar Evrópu og sagði síðar að Úkraína myndi „enda í örlítið breyttri mynd“.

Ummæli Jareds Kushner, sendifulltrúa Bandaríkjanna og tengdasonar Trumps, hafa sömuleiðis hringt viðvörunarbjöllum í Evrópu eftir að hann sagði bandarísk yfirvöld vinna að „víðtækari evrópskri öryggisskipan sem getur hjálpað til við að skapa skilyrði fyrir varanlegum friði í Úkraínu“.

Þá hafa erindrekar Bandaríkjanna verið sakaðir um linkind í garð Rússa og bandarískir fjölmiðlar greint frá því að Bandaríkjamenn séu að ýta á eftir risavöxnum viðskiptasamningum við Moskvu á bak við tjöldin.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅