Sagðir svartsýnir á friðarviðræður
Úkraínumenn eru sagðir svartsýnir á friðarviðræður þeirra og Rússa sem hefjast á morgun í Abú Dabí. Bandaríkjamenn munu hafa milligöngu um viðræðurnar.
Þetta segir úkraínski stjórnmálafræðingurinn Volodimír Fesenko við AFP-fréttaveituna.
Þá segir hann að úkraínsk yfirvöld muni reyna að þrýsta á vopnahlé að hluta eða á afmörkuðum svæðum en rússnesk yfirvöld hafa hingað til hafnað víðtækara vopnahléi.
Ekki að sjá framlag af hálfu Rússa
Johann Wadephul utanríkisráðherra Þýskalands sagði í dag að í ljósi áframhaldandi árása Rússa á borgaralega innviði Úkraínu væri ekki að sjá umtalsvert framlag af hálfu Rússa til þess að samningaviðræðurnar nái skriði.
Fulltrúar Evrópuþjóða munu einnig taka þátt í viðræðunum en hlutverk þeirra í viðræðunum liggur þó ekki fyrir.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hefur sagst hafa samræmt afstöðu sína við fulltrúa Evrópusambandsins fyrir viðræðurnar.
Áhyggjuraddir á lofti
Áhyggjuraddir eru á lofti um að Donald Trump Bandaríkjaforseti muni sneiða hjá hagsmunum Evrópu í viðræðunum.
Hann hefur áður sagt stórt samkomulag við Rússa í sjónmáli sem nái ekki aðeins til Úkraínu heldur hugsanlega allrar Evrópu og sagði síðar að Úkraína myndi „enda í örlítið breyttri mynd“.
Ummæli Jareds Kushner, sendifulltrúa Bandaríkjanna og tengdasonar Trumps, hafa sömuleiðis hringt viðvörunarbjöllum í Evrópu eftir að hann sagði bandarísk yfirvöld vinna að „víðtækari evrópskri öryggisskipan sem getur hjálpað til við að skapa skilyrði fyrir varanlegum friði í Úkraínu“.
Þá hafa erindrekar Bandaríkjanna verið sakaðir um linkind í garð Rússa og bandarískir fjölmiðlar greint frá því að Bandaríkjamenn séu að ýta á eftir risavöxnum viðskiptasamningum við Moskvu á bak við tjöldin.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗