Braut blað í sögunni: Slaufaði sex stafa launatékka og gerðist flugmaður 54 ára: „Ákveðin í að láta þetta verða að veruleika“
Carole Hopson, 62 ára, starfar sem flugstjóri á Boeing 737-vél hjá United Airlines, með starfsstöð skammt frá New York-borg. Hopson er ein sú elsta af afrísk-amerískum konum í flugstéttinni á þessu svæði.
Hopson lét aldurinn ekki stöðva sig og fékk starfið hjá United þann 6. nóvember 2018, þá 54 ára gömul. Á föstudag fagnaði hún sex ára starfsafmæli og segist Hopson vera stolt af því að tilheyra þeim hópi sem tekur djarfar ákvarðanir um starfsferil sinn á nýjum kafla í lífinu.
„Ég velti því oft fyrir mér hvort 25 ára gamla ég væri stolt af þeirri konu sem ég er í dag. Og svarið er já,“ segir Hopson brosandi úr flugstjórnarklefa vélar sinnar, sem stendur á heimavelli sínum á Newark Liberty-alþjóðaflugvellinum. Hún klæðist dökkbláum einkennisbúningi sínum, sem prýddur er fjórum gullröndum á hvorri ermi, merki um háa stöðu hennar, ásamt hefðbundinni flugmannshúfu með gullnum eikarlaufsskreytingum.
„Ég man meira að segja eftir mér fjögurra ára gamalli, þar sem ég lá í grasinu með ömmu minni og horfði upp á flugvélar á himninum,“ segir Hopson, sem er uppalin í Fíladelfíu en býr nú í norðurhluta New Jersey. „Ég hugsaði með mér: Guð minn góður, þetta er eitthvað sem ég verð bara að gera.Og nú fæ ég að lifa þennan draum á hverjum einasta degi.“
En það var alls ekki auðvelt verkefni að hasla sér völl í flugbransanum. Fjármál, hjónaband og móðurhlutverkið gengu allt fyrir drauma Hopson um flugmennsku, sem gerði þá nánast óframkvæmanlega um árabil.
Að stýra Boeing 737-vél krefst sérhæfðrar þjálfunar, segir Hopson. Hún þurfti meðal annars að ná góðum tökum á Mach-tölum, loftaflfræði í mikilli hæð og flóknum kerfum flugvélarinnar. Þar að auki þarf að stjórna þrýstikraftinum, halda um stýrið og fylgjast með mælaborðinu, sem er þakið skjám, ljósum, skífum og mælum, allt á meðan hundruð farþega eru fluttir um allan heim.
En fyrir þessa giftu móður tveggja sona, sem eru 23 og 21 árs, virðist þetta allt vera henni eðlilega og átakalaust.
Hopson tilheyrir þeim 5,7% kvenkyns flugmanna sem hafa öðlast ATP-skírteini (Airline Transport Pilot) æðstu gráðu flugmannsréttinda, samkvæmt bandarísku flugmálastjórninni (FAA). Hún er undantekning í starfsgrein sem einkennist af yfirburðum karla, þar sem karlar eru um 93% starfsmanna en konur 7%, og samkvæmt heimildum hafa karlarnir 26,6% hærri laun en konurnar. Þar að auki tilheyrir Hopson þeim 1,6% kvenkyns flugmanna og flugvélaverkfræðinga sem eru svartar á hörund, samkvæmt tölum frá bandarísku vinnumálastofnuninni (Bureau of Labor Statistics).
Sem betur fer hafa tölur, hvort sem um er að ræða aldur hennar (þar á meðal reglur FAA sem kveða á um að hún verði að láta af störfum eftir þrjú ár, 65 ára að aldri) eða skort á tölfræðilegum upplýsingum um kyn og kynþátt, aldrei hamlað Hopson.
Ekki einu sinni há launin, sem hún sagði skilið við þegar hún hætti í stjórnunarstöðum hjá NFL, Foot Locker og L’Oréal, gátu stöðvað þessa metnaðarfullu konu á áratugalöngu og stormasömu ferðalagi hennar inn í flugstjórnarklefann.
„Það var algjör unaður að fljúga í fyrsta sinn,“ segir Hopson um sitt fyrsta flugtak árið 1992, þegar hún var 28 ára. Hún sveif um himininn í Piper Archer (PA) flugvél. Þessi yndislega upplifun var til komin fyrir tilstilli Michaels, sem þá var kærasti hennar en er nú eiginmaður hennar. Hann kom henni á óvart með gjafabréfum í flugskóla á Teterboro-flugvelli, en þetta gerðist á öðru stefnumóti þeirra í íbúð hans á Manhattan.
„Ég var tilbúin að segja upp vinnunni samstundis og gerast flugmaður,“ segir Hopson hlæjandi, en hún starfaði þá sem blaðamaður á fréttastofu The Bergen Record og fjallaði um glæpamál. „En Michael ráðlagði mér að setja upp áætlun um hvernig ég gæti látið af núverandi starfi. Við reiknuðum með að flugnámið myndi kosta um 150.000 dali. Svo ég byrjaði að spara.“
En eftir að hún giftist Michael árið 1996, skipti leiguíbúð í New York út fyrir húsnæðislán í úthverfunum og eignaðist börn, virtist draumurinn um að svífa um loftin blá enn vera fjarlægur. Hopson, sem útskrifaðist frá Columbia-háskóla, lét af störfum í blaðamennsku og tók að sér þrjú vel launuð stjórnunarstörf hjá stórfyrirtækjum í Bandaríkjunum. Hún tók að sér þessi æðstu stjórnunarstörf til að fjármagna flugáhuga sinn og lagði hluta af hverri útborgun til hliðar í sérstakan sjóð fyrir flugnámið á árunum fyrir aldamótin.
Þökk sé tekjunum gat hún loks sagt skilið við sitt síðasta hefðbundna starf, hjá L’Oréal, snemma á fyrsta áratug aldarinnar. Í júní 2001 öðlaðist hún réttindi sem flugkennari, sem var fyrsta skrefið í átt að því að verða flugmaður.
En hryðjuverkaárásirnar 11. september, sem áttu sér stað þremur mánuðum síðar, urðu til þess að flugáætlanir Hopson drógust á langinn um 14 ár. „11. september hafði áhrif á mig á allan hátt,“ sagði Hopson, enn snortin af hörmungunum sem kostuðu 3.000 manns lífið. „Flug var ekki lengur opið og frjálst. Þetta breytti heiminum, breytti greininni. Þetta breytti mér.“
Á meðan þjóðin var að jafna sig eftir harmleikinn hélt Hopson áfram að starfa sem flugkennari á flugvöllunum í Essex County og Morristown, þar sem hún kenndi bæði áhugamönnum og þeim sem stefndu að atvinnuflugi.
„Ég var bara með 16 dali á tímann og vann eingöngu þegar börnin mín voru í skólanum eða sofandi,“ sagði Hopson og benti á hversu mikil launalækkun þetta var miðað við þau háu laun sem hún hafði haft í fyrri störfum sínum. „En þrátt fyrir lágar tekjur var ég hamingjusamari en ég hafði nokkurn tímann verið áður.“
Að kenna, ala upp börnin sín og losa sig við aukakílóin eftir barnsburð varð daglegt líf Hopson næstu fimmtán árin. Draumar hennar um að verða atvinnuflugmaður voru settir á ís um óákveðinn tíma.
„Ég var allt í einu orðin fimmtug,“ rifjar hún upp. „En ég var samt staðráðin í að láta þetta verða að veruleika.“
Það ár öðlaðist hún ATP-flugmannsréttindi (e. Airline Transport Pilot license), sem gerðu henni kleift að fljúga lengri leiðir á milli landshluta í tveggja hreyfla vélum, fremur en að halda sig eingöngu innan heimahéraðsins.
Í kjölfarið aflaði hún sér viðbótarréttinda frá bandarísku flugmálastjórninni (FAA) til að fljúga í mikilli hæð og stjórna flóknum flugvélum; réttindi sem veita flugmönnum heimild til að fljúga í 25.000 feta hæð og þar fyrir ofan. Með þessi réttindi í farteskinu hóf Hopson störf sem flugmaður hjá ExpressJet Airlines, þá komin á sextugsaldurinn. En samhliða því sem ferilskráin lengdist, hækkaði líka aldurinn.
„Í fyrsta námskeiðinu mínu hjá flugfélaginu sá samnemandi fæðingarár mitt á mætingarlistanum og hrópaði upp yfir sig: ‚Guð minn góður! Hver í ósköpunum er fæddur 1964? Guð minn almáttugur, það er svo langt síðan!‘“ segir Hopson og minnist atviksins sem var henni afar óþægilegt.
Hún var elst í um það bil 20 manna hópi, einn af tveimur svörtum nemendum og eina konan. Þetta var hvorki fyrsta né síðasta skotið sem hún hefur fengið á sig í gegnum tíðina. En hún tekur öllu saman með einstökum glæsibrag.
„Sem betur fer lít ég ekki út fyrir að vera á mínum aldri, svo enginn vissi að þetta væri ég,“ sagði hún og hló við. „En mótlætið hefur verið grimmilegt fordómarnir vegna aldurs og kyns. Kyn mitt vekur kannski aðeins meiri athygli en kynþáttur minn,“ bætti Hopson við, „en kynþátturinn fylgir fast á eftir. Þess vegna legg ég svo hart að mér við að skapa tækifæri og opna dyr fyrir stúlkur eins og mig.“
Eftir að hafa náð stöðu flugstjóra hjá United, ferli sem tók nokkur ár, tofnaði Hopson samtökin Jet Black Foundation, óhagnaðardrifin samtök sem hafa það markmið að koma 100 svörtum konum í flugnám fyrir árið 2035. Í sumar fékk hún styrk í gegnum menntamálayfirvöld í Newark, sem gerði henni kleift að leiðbeina 15 stúlkum, sem eru í 8. til 11. bekk, í flugfræðum og flugtækni. „Við kennum þeim að smíða og fljúga drónum, fræðum þær um vélmennafræði, loftrými og geimferðir,“ segir Hopson.
Hún hyggst aðstoða stúlkurnar við að komast inn í háskólanám þar sem boðið er upp á framúrskarandi flugnám. Þetta mun veita þeim forskot þegar kemur að því að fá sín fyrstu störf í fluggeiranum eða á sviði raungreina og tækni (STEM) að námi loknu.
„Þær munu ekki þurfa að eyða jafn mörgum árum í þetta og ég gerði,“ segir Hopson. Þrátt fyrir gríðarlega þétta dagskrá hefur hún einnig látið verða af því að skrifa bókina A Pair of Wings. Bókin er innblásin af lífi Bessie Coleman, fyrstu konunnar af afrískum og frumbyggjauppruna sem gerðist flugmaður.
„Þar sem ég lét drauminn rætast aðeins síðar á ævinni, hef ég þann kost að búa yfir meiri þroska. Ég er sveigjanleg og get lagað mig að breyttum aðstæðum,“ sagði Hopson í samtali við The Post. „Sem móðir kann ég að gera áætlun A, B og C hvort sem ég er á jörðu niðri eða í háloftunum.“
„Ég segi konum alltaf að þær geti fengið allt sem þær óska sér. Það er bara erfitt að fá þetta allt á sama tíma,“ segir hún hvetjandi. „Og það skiptir engu máli hvenær þú blómstrar aðalatriðið er að þú blómstrir.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗