Gamlar stjörnur sameinast hjá smáliði í Dúbaí
Nokkrir fyrrum leikmenn í ensku úrvalsdeildinni eru komnir saman hjá Arabian Falcons, félagi í þriðju efstu deild Sameinuðu arabísku furstadæmanna.
Félagið var stofnað árið 2023 en Jonjo Shelvey, fyrrum leikmaður Liverpool og Newcastle, tók við þjálfun þess í apríl eftir að hafa lagt skóna á hilluna.
Ravel Morrison, sem þótti mikið efni hjá Manchester United á sínum tíma, er fyrirliði liðsins. Þá spilar Danny Simpson, fyrrum leikmaður Leicester sem varð Englandsmeistari með liðinu árið 2016, einnig með liðinu og sinnir þjálfun einnig.
Jason Puncheon, sem lék meðal annars með Crystal Palace og Southampton, er svo einn eigenda félagsins og yfirmaður knattspyrnumála.
Arabian Falcons er í sjötta sæti deildarinnar, sex stigum á eftir toppliðinu. Shelvey er mjög metnaðarfullur og stefnir á að laða að enn stærri stjörnur á næstunni.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗