Gáfu samstarfsfélögum sínum straum
Innlent | mbl | 9.11.2026 | 18:01
Lögreglumenn á merktum lögreglubíl mættu til að gefa samstarfsfélögum sínum á rannsóknardeildinni, sem voru á gráum ómerktum bíl, straum. Ljósmynd/Aðsend
Rannsóknarlögreglumenn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru ekki undanþegnir því að lenda í vandræðum með bíla sína. Þá er líka gott að eiga góða að og samstarfsfélaga sem hoppa til og leysa úr vandamálinu hratt og örugglega.
Þegar rannsóknarlögreglumennirnir voru fyrr í dag að störfum við að rannsaka vettvang brunans sem varð í Nytjamarkaði ABC við Smiðjuveg í Kópavogi á föstudaginn lentu þeir í þeirri óskemmtilegu reynslu að verða rafmagnslausir. Voru rannsóknarlögreglumennirnir á grárri ómerktri bifreið. Ekki skal sagt til um hvort rafmagnsleysi hafi stafað af ljósum sem gleymdust á eða vegna einhvers annars.
Hins vegar voru samstarfsmenn rannsóknarlögreglumannanna fljótir á vettvang með rafmagnskaplana á lofti, tengdu á milli ómerkta bílsins og lögreglubíls og komu þeim ómerkta í gang á skotstundu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
