Forráðamenn United eiga enn eftir að ákveða sig
Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United hafa enn ekki tekið endanlega ákvörðun um framtíð Michael Carrick sem stjóra félagsins.
Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá en 4:4-jafntefli United gegn Aston Villa í svakalegum leik í gær þýðir að liðið hefur átt sína verstu byrjun á tímabili í ensku deildarkeppninni í 40 ár. United er í 18. sæti deildarinnar með átta stig.
Jafnteflið var þriðji leikur Carrick í stjórastólnum síðan stjórn félagsins ákvað að gefa honum meiri tíma til að rétta úr kútnum eftir 3:0-tap á heimavelli gegn Bournemouth 25. október.
Stjórnin taldi að Carrick, sem og leikmenn liðsins, hefðu unnið sér inn tækifæri til að snúa gengi félagsins við. Þá var jafnframt litið til þess að tveggja vikna landsleikjahlé í nóvember gæfi stjórninni færi á að meta stöðuna betur við rólegri aðstæður.
Forráðamenn United hyggjast gera einmitt það, enda hafa úrslit og frammistaða liðsins í síðustu þremur leikjum gefið misvísandi mynd af starfi Carricks. Liðið hefur unnið einn leik, gert eitt jafntefli og tapað einum.
Það eru augljós vonbrigði að hafa fengið á sig átta mörk, aðeins unnið einn leik og fallið niður í fallsæti. Hins vegar þykir það jákvætt að leikmennirnir hafi þrívegis í síðustu tveimur leikjum náð að jafna sig eftir að hafa lent tveimur mörkum undir. Það er talið benda til þess að leikmennirnir standi enn þétt við bakið á Carrick.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗