Gáfu samstarfsfélögum sínum straum

Innlent | mbl | 9.11.2026 | 18:01

Lögreglumenn á merktum lögreglubíl mættu til að gefa samstarfsfélögum sínum á rannsóknardeildinni, sem voru á gráum ómerktum bíl, straum. Ljósmynd/Aðsend

Rannsóknarlögreglumenn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu eru ekki undanþegnir því að lenda í vandræðum með bíla sína. Þá er líka gott að eiga góða að og samstarfsfélaga sem hoppa til og leysa úr vandamálinu hratt og örugglega.

Þegar rannsóknarlögreglumennirnir voru fyrr í dag að störfum við að rannsaka vettvang brunans sem varð í Nytjamarkaði ABC við Smiðjuveg í Kópavogi á föstudaginn lentu þeir í þeirri óskemmtilegu reynslu að verða rafmagnslausir. Voru rannsóknarlögreglumennirnir á grárri ómerktri bifreið. Ekki skal sagt til um hvort rafmagnsleysi hafi stafað af ljósum sem gleymdust á eða vegna einhvers annars.

Hins vegar voru samstarfsmenn rannsóknarlögreglumannanna fljótir á vettvang með rafmagnskaplana á lofti, tengdu á milli ómerkta bílsins og lögreglubíls og komu þeim ómerkta í gang á skotstundu.

Gott að eiga góða að þegar maður verður rafmagnslaus.

Gott að eiga góða að þegar maður verður rafmagnslaus. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅