Leikmenn í Garðabænum sagðir ósáttir og fá bágt fyrir - „Drullaðu þér í burtu“
Rætt var um breyttan æfingatíma hjá karlaliði Stjörnunnar í fótbolta og meint ósætti einhverra leikmanna með hann í Besta sætinu, hlaðvarpi Vísis, í dag.
Rúnar Páll Sigmundsson, sem gerði Stjörnuna að Íslandsmeistara árið 2014, er tekinn við á ný og ákvað hann að æfingar færu fram seinni partinn. Það hefur færst í aukana að íslensk lið æfi fyrr á daginn, samhliða því að meiri peningar hafa komið inn í Bestu deildina.
„Rúnar Páll fór í viðtal við Chess After Dark á dögunum. Þar talaði hann um að þeir væru að fara að æfa eftir vinnu, klukkan 17 eða eitthvað. Hann í raun sagði að hann skildi ekkert í því að menn væru komnir í þessa atvinnumannatíma, það hentaði mörgum illa,“ sagði Valur Páll Eiríksson í Besta sætinu.
„Stjörnumenn eru búnir að vera að æfa í hádeginu síðustu ár og það eru leikmenn þarna sem telja þetta vera forsendubrest og eru að hugsa sér til hreyfings. Þetta er klefi sem hágrét það þegar þjálfarinn fór og nánast lét reka þann sem tók við, Jón Þór, í sumar.“
Eins og Valur bendir á gekk mikið á hjá Stjörnunni í sumar. Liðið olli gríðarlegum vonbrigðum og endaði í 8. sæti. Jökull Elísabetarson var rekinn, Jón Þór tók við og sem fyrr segir var hann látinn fara líka. Nokkurra manna teymi lauk tímabilinu með liðinu.
„Það er líka ákveðinn forsendubrestur í því hversu ömurlegir þessir leikmenn voru í sumar. Ef þeir eru að væla yfir forsendubresti myndi ég bara segja: Drullaðu þér í burtu,“ sagði Stefán Árni Pálsson, ómyrkur í máli, í þættinum.
„Er þetta ekki pínu Lisandro Martinez, þarftu ekki að eiga innistæðu fyrir því að rífa kjaft?“ bætti Henry Birgir Gunnarsson við.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗