Tímamótaverklok á Seyðisfirði
Voldugur varnagarður, einn þriggja í fyrri áfanga verksins, norðan fjarðarins, óðum að setja svip sinn á umhverfi Seyðisfjarðar. Ljósmynd/Skúli Júlíusson
„Já, við erum búnir með þennan síðasta kafla bara,“ segir Benedikt Ólason, yfirverkstjóri hjá Héraðsverki á Austurlandi sem annast hefur gerð ofanflóðavarnagarða á Seyðisfirði sem ráðist var í framkvæmdir við í kjölfar þeirra hamfara sem urðu þegar risavaxin aurskriða féll á bæinn í desember 2020 og olli þar gríðarlegu tjóni.
Aðeins er þó um lok áfanga að ræða, að þessu sinni norðan fjarðarins, þar sem undirbúningur og framkvæmdir við varnagarða sunnan hans hefjast með rísandi sól á nýju ári.
Af þessari mynd er auðvelt að gera sér legu garðanna í hugarlund og í grundvallaratriðum með hvaða hætti slíkir garðar verja byggð. Ljósmynd/Skúli Júlíusson
Aðspurður segir Benedikt verkið hafa gengið vel og fimmtán til 20 manns almennt verið við byggingu varnagarðanna þriggja, Bakkagarðs, Fjarðagarðs og Öldugarðs, frá því framkvæmdir hófust árið 2022, en síðustu grindinni í Bakkagarði var komið fyrir á föstudaginn og greindi vefmiðillinn Austurfrétt frá því samdægurs og lét fylgja sögunni að kökur og guðaveigar hafi verið á borðum í tilefni áfangans.
Öldugarður 20 metra hár
„Við erum búnir að klára þennan garð, sem er síðasti garður í verkinu,“ segir Benedikt við mbl.is og bætir því við nú standi þrif og lokafrágangur yfir sem meðal annars feli í sér að þrífa svokallaða flóðrás og fjarlægja vinnuvegi sem hans menn hafa notað við framkvæmdirnar síðustu ár.
Öryggi íbúa Seyðisfjarðar gagnvart ofanflóðum hefur tekið stakkaskiptum síðustu árin, í kjölfar þess er stórtjón varð í bænum laust fyrir jólin 2020 þegar stór aurskriða féll þar. Ljósmynd/Skúli Júlíusson
Auk garðanna sjálfra var sérstökum varnarkeilum komið upp og girðingum, eða grindum, efst á görðunum. Sem dæmi um umfang verksins má nefna að fremsti hluti Öldugarðs er um 20 metra hár, frá götu mælt, en 23,5 metrar yfir sjávarmáli.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

