Hann er ekki sérlega greindur

Giannis Antetokounmpo.

Giannis Antetokounmpo. AFP/Kevin C. Cox

Körfuboltaþjálfarinn Doc Rivers var ómyrkur í máli þegar hann ræddi um grísku stórstjörnuna Giannis Antetokounmpo í hlaðvarpinu The Bill Simmons Podcast.

Rivers þjálfaði Giannis hjá Milwaukee Bucks í tvö og hálft ár, frá janúar 2024 þar til hann lét af störfum hjá félaginu í apríl á þessu ári.

Árangurinn lét á sér standa hjá Milwaukee undir stjórn Rivers og var hann því látinn taka pokann sinn í apríl. Giannis gekk síðar til liðs við Miami Heat í sumar.

Rivers sagði Giannis vera erfiðan leikmann í þjálfun.

„Hann er mjög erfiður leikmaður. Hann hefur frábæra sendingagetu en á sama tíma er hann ekki sérlega greindur.

Hann hefur í raun aðeins eina leið til að spila. Í hverri sókn vill hann knýja hlutina í gegn. Ég vildi óska þess að hann lærði að útfæra hlutina betur,“ sagði Rivers. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅