Óvenju tíðar fjarvistir vekja grunsemdir
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir vísbendingar um að veikindaréttur kunni að vera misnotaður en haldbærar sannanir skorti. mbl.is/María
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir vísbendingar um að veikindaréttur starfsfólks bæjarins kunni að vera misnotaður en tekur fram að ekki liggi fyrir haldbærar sannanir um slíkt.
Hún vill herða kröfur um læknisvottorð hjá starfsfólki sem er óvenju oft frá vinnu vegna skammtímaveikinda og hefur lagt fram tillögur þess efnis í bæjarráði.
„Þetta á ekki við um stóran hóp fólks,“ segir Ásdís í samtali við mbl.is.
Hún áætlar að aðgerðirnar beinist að um 5 til 8% þeirra sem eru veikir að jafnaði.
Ásdís segir veikindi starfsfólks Kópavogsbæjar í heild kosta bæinn um tvo milljarða króna á ári. Með aðgerðunum vonast hún til að draga úr veikindafjarvistum og kostnaði þeim tengdum.
Ásdís nefnir sem dæmi starfsfólk sem tilkynnir veikindi að jafnaði tvo daga í mánuði. Við mat á fjarvistunum er stuðst við svokallaðan Bradford-kvarða, sem tekur mið af fjölda veikindadaga og hversu oft starfsmaður er frá vegna veikinda.
Samkvæmt tillögunum á að skoða hvort skylda eigi starfsfólk á tveimur efstu þrepum kvarðans til að skila læknisvottorði sem staðfestir að viðkomandi hafi hitt lækni. Hingað til hafi bærinn í ákveðnum tilvikum tekið við vottorðum án þess að starfsfólk þyrfti endilega að hitta lækni.
Kópavogsbær vill herða kröfur um læknisvottorð vegna ítrekaðra skammtímaveikinda. Myndin er úr safni. Ljósmynd/Unsplash
Vill koma í veg fyrir misnotkun
„Ég hef alveg heyrt af því að það eru dæmi þess efnis, þó við séum ekki með haldbærar sannanir,“ segir Ásdís, spurð hvort vísbendingar séu um misnotkun veikindaréttar.
Hún telur að auknar kröfur um læknisvottorð geti komið í veg fyrir að fólk tilkynni veikindi án þess að vera veikt og líti á veikindadaga sem eins konar frídaga.
Í minnisblaði mannauðsstjóra Kópavogsbæjar er bent á að munur á veikindahlutfalli milli starfahópa geti meðal annars tengst eðli starfa, vinnuálagi og vaktavinnu.
Ásdís leggur jafnframt áherslu á að með aðgerðunum vilji bærinn átta sig betur á ástæðum tíðra veikindafjarvista og kanna hvort starfsfólk þurfi frekari stuðning. Til skoðunar sé meðal annars aukið samstarf við Heilsuvernd.
Ásdís segir veikindi starfsfólks Kópavogsbæjar í heild kosta bæinn um tvo milljarða króna á ári. Með aðgerðunum vonast hún til að draga úr veikindafjarvistum og kostnaði þeim tengdum. mbl.is/Karítas
Getur haft áhrif á veikindalaun
Samkvæmt tillögunum yrði óskað eftir nýju vottorði ef það sem starfsmaður skilar staðfestir ekki að viðkomandi hafi hitt lækni og hvenær það hafi verið. Berist fullnægjandi vottorð ekki yrði leitað mats trúnaðarlæknis á vinnufærni starfsmanns og réttmæti fjarvistanna.
Mat trúnaðarlæknisins yrði þá lagt til grundvallar ákvörðun um greiðslu veikindalauna, að teknu tilliti til laga og kjarasamninga.
„Ef læknisvottorð staðfestir að viðkomandi starfsmaður sé ekki veikur, þá erum við auðvitað ekki að fara að greiða fyrir þann veikindadag.“
Ásdís tekur fram að Kópavogsbær muni sjálfur greiða fyrir þau læknisvottorð sem óskað verður eftir.
Tillögurnar voru lagðar fram til umræðu í bæjarráði 5. nóvember og miðast við breytingar á verklagi á næsta ári. Endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin.
Vill draga úr kostnaði og álagi
Ásdís segir áætlaðan veikindakostnað bæjarins byggjast á heildarveikindum starfsfólks og launakostnaði. Í minnisblaði mannauðsstjóra kemur fram að kostnaðartölur bæjarins í mælaborði mannauðs byggjast á grunnlaunum. Enn sé unnið að því að ná betur utan um heildarkostnað vegna veikindafjarvista.
Bærinn hefur undanfarin tvö ár unnið að því að draga úr veikindafjarvistum og segir Ásdís átakið hafa skilað árangri.
Samkvæmt gögnum bæjarins fækkaði veikindadögum vegna skammtímaveikinda um 8,6% fyrstu átta mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Á sama tíma fækkaði veikindalotum um 2,5% og Bradford-stig lækkuðu um 17%.
Ásdís leggur áherslu á að markmiðið sé ekki aðeins að draga úr veikindafjarvistum og kostnaði, heldur einnig að stuðla að heilbrigðara starfsumhverfi. Tíðar veikindafjarvistir valdi miklu álagi á sumum starfsstöðvum og vonast hún til að aðgerðirnar dragi úr því.
Deilt um árangur átaksins
Eydís Inga Valsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur gagnrýnt tillögurnar og bent á að heildarveikindahlutfall starfsfólks sé hærra en þegar átakið hófst.
Í bókun sinni á fundi bæjarráðs gagnrýnir hún jafnframt að ekki liggi fyrir skýr töluleg markmið eða kostnaðarmat á auknu eftirliti með starfsfólki.
„Þegar árangurinn er hingað til takmarkaður geldur Samfylkingin varhug við að gengið sé enn harðar fram gagnvart veiku starfsfólki bæjarins.“
Ásdís segir gagnrýnina ekki taka nægilegt mið af því að átakið hafi fyrst og fremst beinst að skammtímaveikindum en ekki langtímaveikindum, sem erfiðara sé að hafa áhrif á.
Hlutfall skammtímaveikinda hækkað í grunnskólum
Þótt skráðum dögum vegna skammtímaveikinda hafi fækkað hjá bænum í heild hefur hlutfall skammtímaveikinda í grunnskólunum hækkað samkvæmt fyrirliggjandi tölum.
Samkvæmt yfirliti mannauðsstjóra var hlutfall skammtímaveikinda í grunnskólum 5,50% árið 2024 og 6,58% árið 2025. Fyrstu átta mánuði ársins 2026 var hlutfallið 6,84%.
Spurð um þessa þróun segir Ásdís að bærinn muni skoða sérstaklega hvaða starfsstöðvar glími við miklar veikindafjarvistir og hvort grípa þurfi til frekari stuðnings eða forvarna.
Til standi að efla mælaborð bæjarins svo stjórnendur fái betri yfirsýn yfir veikindafjarvistir. Ásdís tekur jafnframt undir mikilvægi þess að setja skýr og mælanleg markmið um árangur aðgerðanna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

