Á förum frá Arsenal?
Spánverjinn Martin Zubimendi gæti verið á förum frá Englandsmeisturum Arsenal í fótbolta og á leiðinni til Atlético Madrid í heimalandinu í komandi janúarglugga.
Spænska ríkisútvarpið, RNE, greinir frá en Zubimendi, sem er 27 ára gamall miðjumaður, hefur lítið spilað með Arsenal á yfirstandandi tímabili.
Hann hefur ekki byrjað einn leik í ensku úrvalsdeildinni en komið inn á í sjö af tíu leikjum liðsins.
Zubimendi gekk í raðir Arsenal frá Real Sociedad í fyrrasumar og skrifaði undir samning til sumarsins 2030.
Spánverjinn lék alla 38 leiki liðsins á síðustu leiktíð þegar Arsenal varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í 22 ár.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗