Skellur fyrir van Dijk
Fyrirliðinn Virgil van Dijk hefur dregið sig úr hollenska landsliðshópnum fyrir komandi landsleiki.
Félag hans Liverpool greinir frá því að van Dijk hafi glímt við smávægileg meiðsli undanfarnar vikur og verði því ekki með landsliði sínu.
Þrátt fyrir meiðslin hefur van Dijk haldið áfram að spila með Liverpool en hvílir nú í landsliðsverkefninu.
Holland mætir Grikklandi og Þýskalandi í síðustu tveimur leikjum sínum í öðrum riðli A-deildar Þjóðadeildar Evrópu. Hollendingar eru á toppi riðilsins með átta stig eftir fjóra leiki.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗