Íslenskir kylfingar bíða enn ellefu dögum síðar

Rúmlega 40 töskur urðu eftir í Tyrklandi þegar íslenskir kylfingar héldu heim á leið 29. október. Von er á farangrinum á næstu dögum. Samsett mynd: mbl.is/Eyþór/Colourbox

Þrátt fyrir að Icelandair hefði selt tíu færri sæti en ella í leiguflugi frá Antalya í Tyrklandi til Íslands komst ekki allur farangur farþeganna fyrir í vélinni. Rúmlega 40 töskur urðu eftir þegar íslenskur golfhópur hélt heim á leið 29. október síðastliðinn.

Um var að ræða golfferð á vegum VITA, en farangurinn hefur enn ekki allur skilað sér til landsins, ellefu dögum eftir heimflugið.

Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, staðfestir í samtali við mbl.is að farangurinn hafi orðið eftir vegna plássleysis í farangursrými flugvélarinnar.

Félagið hafði gert ráð fyrir meiri farangri en venjulega, enda ferðaðist hópurinn með golfbúnað. Því voru tíu færri sæti seld í vélina og farþegar hvattir til að takmarka farangur sinn.

Þær ráðstafanir dugðu þó ekki til.

Þessi farangur hefur vonandi skilað sér til eiganda síns.

Von á farangrinum á næstu dögum

Guðni segir að um 30 töskur hafi einnig orðið eftir á Íslandi á útleiðinni. Á heimleiðinni hafi rúmlega 40 töskur orðið eftir og er nú von á um helmingi farangursins á morgun, þriðjudaginn 10. nóvember, og hinum helmingnum á næstu dögum.

Að sögn Guðna hefur tekið lengri tíma að koma farangrinum til Íslands þar sem Icelandair er ekki með áætlunarflug til Antalya. Félagið hafi því þurft að reiða sig á önnur flugfélög við flutninginn.

Tilviljun réð því hvað varð eftir

Guðni segir að það hafi verið handahófskennt hvaða farangur varð eftir þegar ljóst var að ekki væri hægt að koma honum öllum fyrir í vélinni.

Icelandair hyggst nú fara yfir skipulag sambærilegra ferða til að draga úr líkum á að slíkt endurtaki sig. Meðal þess sem kemur til skoðunar er hvort heppilegra væri að nota aðrar flugvélategundir í leiguflugi þar sem farþegar ferðast með mikinn búnað.

Mbl.is óskaði einnig eftir upplýsingum um hversu algengt væri að farangur tefðist hjá Icelandair. Guðni segist ekki hafa tölfræði um slíkar tafir undir höndum en segir þær afar sjaldgæfar þegar litið sé til alls leiðakerfis félagsins.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅