Óvænt nafn í umræðuna um starfið hjá Lundúnaliðinu
Crystal Palace íhugar að reka Pierre Sage, stjóra liðsins, eftir slæma byrjun á tímabilinu.
Palace tapaði 3-1 gegn Liverpool í gær og situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar með aðeins sjö stig eftir tíu leiki. Sage tók við liðinu í sumar en gæti nú verið á förum.
Samkvæmt The Athletic er Tony Popovic, landsliðsþjálfari Ástralíu, einn þeirra sem koma til greina til að taka við af Sage. Popovic er 53 ára gamall og lék með Palace á árunum 2001 til 2006. Hann starfaði einnig sem aðstoðarþjálfari hjá félaginu.
Thomas Frank, fyrrverandi stjóri Tottenham, er þó talinn líklegasti arftaki Sage. Sean Dyche og Vitor Pereira hafa einnig verið orðaðir við starfið.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗