Davíðstíminn: Snemma beygist krókurinn – Davíð fór í stríð við Skólablaðið í MR
Davíð Oddsson var með reynslu af því að fara í stríð gegn fjölmiðlum áður en hann réðst gegn eigendum Fréttablaðsins með fjölmiðlafrumvarpinu fyrir næstum aldarfjórðungi. Í MR fjallaði Skólablaðið gagnrýnið um störf Davíðs sem Inspector Scholae, eða formaður nemendafélagsins, og greip þá Davíð til þess ráðs að blása til orrustu gegn blaðinu og gerði könnun sem sýndi litlar vinsældir þess. Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson, sem á dögunum gáfu út bókina Davíðstíminn, eru gestir Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Þarna er stór og mikill kafli sem að tengist efnahagshruninu. Leiðið okkur aðeins í gegnum það.
Jón Trausti: „Það er kannski sá hluti sem fólk þekkir flest og hefur verið að fjalla um meira en nokkurt annað atvik eða atburði í líklega Íslandssögunni með rannsóknarskýrslu Alþingis og fleiri bókum sem hafa komið út náttúrlega. Við svona reynum að bara svona móta þráð í gegnum þetta hrun þannig að við séum ekki að taka allt sem að fólk þekkir nú fyrir. Við finnum samtöl manna sem hafa birst í, ekki bara yfirheyrslu rannsóknarnefndarinnar heldur líka í bókum og svoleiðis.
Kaflinn á undan er eðlilega efnahagsundrið. Það er svolítið áhugavert að fara svona hratt í gegnum þetta og reyna að sjóða þetta niður í einfalda frásögn því að þarna er fólk að tala um undur og töfra og allt svo fram eftir götunum. Svo sér maður svolítið að töfraefnið er lántökur. Við reynum nú að þræða okkur eftir svona helstu hagtölum og svoleiðis líka, skoða ársskýrslu Seðlabankans og það sem er nú verið að vara við þessu öllu árin áður og það er nú lamið niður jafnt og þétt og með vaxandi þunga að þetta sé gagnrýnt. Mér fannst líka bara áhugavert, margir komast að þeirri niðurstöðu að þetta sé nú bara Davíð Oddssyni að kenna eða eitthvað þannig. Hann er náttúrulega höfundur þessa samfélags.“
Hann er höfundurinn, það er alveg rétt, mikill áhrifamaður og það er, margir þræðir liggja til hans.
Jón Trausti: „Eins og við hérna sjáum í bókinni. En það er líka ótrúlega áhugavert að sjá hvernig aðrir hegða sér í þessum aðstæðum. Maður náttúrlega skynjar bara valkreppuna sem þetta fólk er í, bæði bisnessmennirnir og líka stjórnmálamennirnir, og þessa hræðilegu flækju sem sumir eru komnir í. Bjarni Benediktsson er í einhverri hræðilegri flækju þarna, bara innvíklaður í alls konar bissness eins og við höfum nú bara fjallað um í ýmsum miðlum. Þorgerður Katrín er í mjög slæmri stöðu.
Geir Haarde var ekki í þessum hagsmunaárekstri sem ég er að nefna þarna en klemman sem blessaður maðurinn var í, maður bara finnur til með honum og hann veit ekki hvað hann á að segja og greinilega óviss og þessi særindi sem maður sér. Kjartan Gunnarsson var að sögn Davíðs hans besti vinur. Og þeir kynnast í Menntaskólanum í Reykjavík, þess vegna byrjum við nú þar meðal annars.
Þegar Davíð er inspector scholae er hann í heljarinnar valdatafli þarna í skólanum. Skólablaðið er búið að snúast gegn honum. Hann lætur gera skoðanakönnun um vinsældir skólablaðsins sem sýnir að þær séu litlar. Fer í stríð við fjölmiðilinn innan skólans. Og á einhverjum tímapunkti þá gefur Kjartan sig upp við Davíð og byrjar að segja honum frá því að það sé verið að plotta gegn honum. Og þeir ganga þarna saman í átt að Seltjarnarnesi eina kvöldstund, menntaskóladrengirnir. Kjartan aðeins yngri og þarna bindast þeir böndum, verða samherjar eins og við þekkjum. Hann situr í bankaráði Landsbankans hann Kjartan, bæði sem ríkisbanka og eftir einkavæðinguna. Hann er framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í öll þessi ár. En undir lok efnahagshruns þá verða þarna alveg sár vinslit þar sem Kjartan á fundi Sjálfstæðismanna í Valhöll lýsir því yfir í október 2008 að hann sé ekki óreiðumaður. Það var beint í kjölfar þess að Davíð hafði farið í frægt viðtal þar sem hann sagðist ekki ætla að borga skuldir óreiðumanna.
Það er einhvern veginn þessi mannlegi vinkill og þráður í þessu öllu sem að er svo gríðarlega blæbrigðaríkur, myndi ég segja. Þarna er fólk í, fólk sem er að verða veikt líka. Geir verður veikur, Ingibjörg Sólrún verður veik. Ég er ekki að segja að við séum að fara í hyldjúpt ofan í persónulega upplifun fólks en þegar maður dregur þetta allt saman á einn stað þá sér maður bara hérna hvað þetta hefur verið ógnarsterkur atburður og hversu mikil vatnaskil verða þarna.
Kaflinn um efnahagshrunið, heitir Veislulok. Tilvísun í yfirlýsingu Árna Mathiesen á Alþingi: „Sjáið þið ekki veisluna?““
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗