Krefjast þess að Morgunblaðið biðjist afsökunar á myndbirtingunni

Félagið Ísland-Palestína krefst þess að Morgunblaðið biðjist afsökunar á að hafa birt mynd sem tekin var við mótmæli á vegum félagsins. Fremst á myndinni er palestínsk kona sem býr á Íslandi en myndin var birt við frétt um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar til erlendra ríkisborgara, en umrædd kona er í fullri vinnu og þiggur því ekki fjárhagsaðstoð. 

Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu félagsins. Myndin var birt í bæði prent- og vefútgáfu blaðsins í síðustu viku og vakti hörð viðbrögð. Var í kjölfarið skipt um mynd í vefútgáfunni en eðli málsins samkvæmt var það ekki hægt þegar kom að prentútgfáfunni en það jók enn á gagnrýnina að umrædd frétt, með myndinni, var birt í blaðinu á fimmtudegi en þann dag er Morgunblaðinu dreift ókeypis í öll hús á Höfuðborgarsvæðinu.

Konan sjálf steig síðan fram í viðtali við Mannlíf og sagði það bæði sárt og niðurlægjandi að mynd af henni væri birt með frétt sem hefði ekkert með hana og hennar líf að gera.

Sjá einnig: Saraa stígur fram eftir myndbirtingu Morgunblaðsins – „Sárt og niðurlægjandi“

Afsökun

Í færslu félagsins er því mótmælt að myndin sem tekin sé af mótmælum félagsins gegn þjóðarmorði, sé notuð við frétt Morgunblaðsins um alls óskylt málefni:

„Félagið mótmælir jafnframt að myndbirtingin virðist hafa þann tilgang að varpa neikvæðu ljósi á tiltekinn hóp fólks, nánar tiltekið Palestínumenn og konur, í tengslum við umfjöllum um fólk á fjárhagsaðstoð hjá  Reykjavíkurborg. Félagið gerir einnig athugasemd við þá almennu tilraun sumra fjölmiðla að reyna að skapa neikvæð hugrenningatengsl hjá lesendum þar sem látið er í það skína að Palestínufólk sé baggi á samfélaginu og til ófriðar m.a. með lýðræðislegri þátttöku sinni í mótmælum sem eru mannréttindi allra.“

Er þess krafist, í ljósi þess að myndina sé enn að finna í prentútgáfu blaðsins, með umræddri frétt, að Morgunblaðið biðji konuna, Saraa Almasri, afsökunar og það opinberlega.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅