Chelsea og fleiri stórlið skoða það að kaupa hann í janúar
Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 9. nóvember 2026 17:00
Boubacar Kamara - Matheus Cunha Getty Images
Boubacar Kamara, miðjumaður Aston Villa, hefur vakið áhuga þriggja stórliða eftir að hafa snúið aftur á völlinn úr meiðslum.
Samkvæmt þýska miðlinum Fussball News fylgjast Chelsea, Inter Milan og Al-Hilal öll grannt með stöðu Frakkans og gætu reynt að fá hann til sín á næstu misserum.
Kamara er 26 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Aston Villa þegar hann hefur verið heill heilsu.
Endurkoma hans eftir meiðsli hefur vakið athygli og virðast félögin þrjú hafa sett hann á óskalista sinn.
Chelsea gæti því þurft að berjast við bæði ítalska stórliðið Inter og Al-Hilal frá Sádi-Arabíu um þjónustu miðjumannsins.
Ekki liggur fyrir hvort eitthvert félaganna hyggist leggja fram formlegt tilboð þegar janúarglugginn opnar.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗