Sakfelldur fyrir fjárdrátt en eiginkonan sýknuð
Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að fjárdráttur mannsins hefði falið í sér alvarlegt trúnaðarbrot og varðað verulega fjárhæð. mbl.is/Golli
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt mann í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt og skilasvik. Fjárdrátturinn varðaði söluandvirði fjögurra bifreiða sem honum bar að skila til pólskra félaga.
Glitvangur ehf. var jafnframt dæmdur til að greiða 36 milljónir króna í sekt fyrir peningaþvætti og skilasvik. Helmingur sektarinnar er skilorðsbundinn til tveggja ára, en félaginu er gert að greiða hinar 18 milljónirnar innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.
Eiginkona mannsins, sem var ákærð fyrir peningaþvætti og skilasvik, var sýknuð af öllum kröfum ákæruvaldsins. Dómurinn var kveðinn upp 6. nóvember.
Ráðstafaði fjármununum í eigin þágu og annarra
Maðurinn hafði í gegnum félagið Daxson ehf. milligöngu um sölu fjögurra Mercedes-Benz Sprinter-bifreiða frá pólsku Mercus-félögunum til kaupenda hér á landi. Daxson hét síðar D-Son import ehf. og var tekið til gjaldþrotaskipta.
Maðurinn var sakfelldur fyrir fjárdrátt vegna fjármuna að andvirði samtals 292.500 evra sem bar að skila til pólsku félaganna. Hann ráðstafaði fjármununum þess í stað í eigin þágu og í þágu annarra, meðal annars Daxson og Glitvangs.
Þannig voru 18 milljónir króna millifærðar af reikningi Daxson til Glitvangs í janúar 2019. Þá fékk maðurinn 11,12 milljónir króna millifærðar frá eiginkonu sinni eftir sölu einnar bifreiðarinnar, sem hafði verið skráð á hana.
Hafnaði skýringum um endursölu og gagnkröfur
Maðurinn hélt því meðal annars fram að hann eða Daxson hefði keypt bifreiðarnar af Mercus-félögunum og endurselt þær hér á landi. Ágreiningurinn væri því einkaréttarlegur. Þá taldi hann sig eiga gagnkröfur á pólsku félögin vegna meðal annars afslátta, þjónustu og varahluta.
Dómurinn taldi framburð mannsins um að hann eða Daxson hefði keypt bifreiðarnar ótrúverðugan og í ósamræmi við rannsóknargögn. Sannað væri að viðskiptin hefðu falist í milligöngu um sölu og að honum hefði borið að skila söluandvirðinu til Mercus-félaganna.
Jafnvel þótt maðurinn eða Daxson hefði átt gagnkröfur hefði honum ekki verið heimilt að ráðstafa fjármununum, án samkomulags við pólsku félögin, upp í meinta og ósamþykkta skuld.
Greiðsla byggðist á málamyndagerningi
Glitvangur var sakfelldur fyrir peningaþvætti vegna móttöku og ráðstöfunar 18 milljóna króna greiðslunnar frá Daxson. Samkvæmt skuldayfirliti átti greiðslan að standa undir aðstöðugjaldi, hlutdeild í kostnaði við lagningu bílastæðis og fyrirframgreiddu aðstöðugjaldi til tveggja ára.
Dómurinn taldi greiðsluna hafa byggst á málamyndagerningi og því verið óréttmæta. Meðal annars hefðu hvorki leigutekjur né útistandandi leigukröfur á Daxson verið skráðar í ársreikninga Glitvangs fyrir árin 2019 og 2020. Þá lægi enginn skriflegur leigusamningur fyrir.
Af fjárhæðinni voru 17,7 milljónir króna síðan nýttar til að greiða skuld Glitvangs vegna fasteignaláns.
Skertu rétt lánardrottna með veðsetningu
Maðurinn og Glitvangur voru einnig sakfelldir fyrir skilasvik vegna þinglýsingar 150 milljóna króna tryggingarbréfs á fasteign Glitvangs árið 2021.
Þá var rekið mál gegn félaginu til riftunar á fyrrnefndri 18 milljóna króna greiðslu. Tryggingarbréfið var gefið út sama dag og riftunarmálið var þingfest.
Dómurinn taldi að með þinglýsingu bréfsins hefði réttur lánardrottna til fullnustu í eignum Glitvangs verið skertur og fjártjónshætta þeirra aukist. Kyrrsetningargerð hefði reynst árangurslaus þar sem fasteignin var talin yfirveðsett.
Tryggingarbréfinu var síðar aflýst en það breytti ekki refsinæmi háttseminnar.
Eiginkonan kom ekki að rekstrinum
Við sýknu eiginkonu mannsins leit dómurinn til þess að framburður hennar og mannsins, ásamt rannsóknargögnum, studdi að hún hefði ekki komið að rekstri Daxson og Glitvangs þótt hún hefði verið skráð stofnandi eða í forsvari fyrir félögin.
Ekki væri sannað að ásetningur hennar hefði staðið til peningaþvættis vegna móttöku og millifærslu söluandvirðis bifreiðarinnar. Þá var hún ekki talin hafa gerst sek um refsiverða háttsemi með undirritun tryggingarbréfsins.
Dráttur hafði áhrif á refsingu
Við ákvörðun refsingar leit dómurinn til þess að fjárdráttur mannsins hefði falið í sér alvarlegt trúnaðarbrot og varðað verulega fjárhæð.
Jafnframt var tekið tillit til þess að hvorki maðurinn né Glitvangur hefðu áður gerst sek um refsiverða háttsemi svo kunnugt væri. Þá hefði orðið óhæfilegur dráttur á meðferð málsins hjá ákæruvaldinu sem þeim yrði ekki kennt um.
Fangelsisrefsing mannsins er öll skilorðsbundin til tveggja ára. Vegna þess hve langt var liðið frá broti Glitvangs var helmingur sektar félagsins einnig bundinn skilorði.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗