Stjarnan slapp vel í flugeldaslysi
Lando Norris, heimsmeistari í Formúlu 1 árið 2025, slapp ómeiddur eftir að neisti frá flugeldasýningunni á verðlaunapallinum lenti í andliti hans þegar hann fagnaði sigri sínum í brasilíska kappakstrinum í gær.
McLaren-ökuþórinn hafði nýlega mölbrotið kampavínsflöskuna sína þegar hann reyndi hefðbundin fagnaðarlæti sín, þar sem hann slær henni í gólfið til að láta kampavínið sprautast.
Norris virtist síðan ganga beint inn í flugeldana og huldi strax andlitið eftir að hafa orðið fyrir neistanum.
„Mér skilst að hann sé í lagi,“ sagði Andrea Stella, liðsstjóri McLaren, við Sky.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗