Skiptir um lið í úrvalsdeildinni
Körfuknattleiksmaðurinn Ólafur Björn Gunnlaugsson hefur gert samning við ÍR.
Ólafur kemur til félagsins frá Keflavík en hann rifti um daginn samningi sínum við Keflvíkinga vegna anna í krefjandi starfi í Reykjavík.
Ólafur lék fjóra leiki með Keflavík á yfirstandandi tímabili og skoraði að meðaltali sjö stig og tók þrjú fráköst í leik.
Hann er kominn með leikheimild með ÍR og getur því tekið þátt í leik liðsins gegn Tindastóli á Sauðárkróki í kvöld.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗