Daði boðar afhendingu gagna um Landsvirkjun

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Karítas

Öll gögn í fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem varða umrætt mál Landsvirkjunar verða lögð fram, að sögn Daða Más Kristóferssonar fjármála- og efnahagsráðherra. Hann treystir sér hins vegar ekki til að fullyrða hvort hægt verði að afhenda fundargerðir og gögn um innri samskipti fyrirtækisins.

Þetta kom fram í svörum ráðherrans við fyrirspurn Sigríðar Á. Andersen, þingmanns Miðflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Umræðan snerist um fundi ráðherrans með stjórn Landsvirkjunar, aðkomu forstjórans að þeim og aðgang að gögnum um samskiptin.

Daði hafnaði því að ágreiningur hefði verið milli hans og stjórnar eða forstjóra Landsvirkjunar. Hann áréttaði hins vegar að ágreiningur hefði verið milli stjórnar og forstjóra fyrirtækisins.

Tveir fundir án forstjórans

Sigríður gagnrýndi að forstjórinn hefði ekki setið fundi stjórnar Landsvirkjunar með ráðherra. Hún taldi að ræða hefði átt ágreininginn sem uppi væri með forstjórann við borðið.

Hún vísaði til umræðu í síðustu viku, þegar fundunum hefði verið lýst sem hefðbundnum fundum um stjórnarhætti og eigendastefnu ríkisins, og spurði hvort ráðherrann teldi enn réttlætanlegt að halda þá án forstjórans.

Daði vísaði til munnlegrar skýrslu sinnar á Alþingi í síðustu viku og ítrekaði að forstjóranum hefði ekki verið haldið frá fundum. Hann hefði verið boðaður á alla fundi nema þá sem samkvæmt starfsreglum stjórnar væru haldnir milli stjórnar og ráðherra.

Þeir fundir hefðu verið tveir, einn á hvoru ári. Fundir af þessu tagi væru hluti af almennum samskiptum fjármálaráðherra við stjórnir ríkisfyrirtækja. Sambærilegir fundir hefðu verið haldnir með stjórnum fleiri stórra fyrirtækja.

Daði tók jafnframt fram að starfsreglurnar hefðu verið settar af fyrri stjórn Landsvirkjunar.

Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins.

Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins. mbl.is/Karítas

Öll gögn eða ekki öll gögn

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði síðar í fyrirspurnartímanum af hverju öll gögn hefðu ekki þegar verið lögð fram fyrst ráðherra hefði sagt það áður. Daði svaraði því til að með öllum gögnum ætti hann við lengra tímabil.

„Ástæðan fyrir því að ég tók svo til orða, að fleiri gögn kæmu fram, er að þau gögn sem hafa komið fram ná til takmarkaðs tímabils og einungis Landsvirkjunar. Ég held, án þess að við höfum fengið spurningar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að við reiknum með því að það muni ná til alls stjórnartíma þessarar stjórnar og jafnvel lengra aftur í tímann, svo ég geri ráð fyrir því að fleiri gögn muni koma fram,“ sagði Daði.

Vandamálum ekki flaggað í fundarbeiðni

Sigríður spurði einnig um fund með stjórn og forstjóra sem til stóð að halda í janúar en varð ekki af. Hún sagði ýmist hafa verið greint frá því að ráðherrann hefði frestað fundinum eða talið hann óþarfan. Óskaði hún eftir að tölvupóstar og fundargerðir yrðu lögð fram til að varpa ljósi á málið.

Daði sagði ekkert í fundarbeiðni Landsvirkjunar hafa bent til þess að ræða ætti sérstök vandamál. Fundarefnið hefði verið tilgreint sem málefni Landsvirkjunar. Þá hefði ekkert í samskiptum ráðuneytisins við forstjórann á öðrum fundum bent til slíkra vandamála.

„Hefði ég vitað af vandamálum hefði ég að sjálfsögðu viljað halda fundi,“ sagði Daði.

Hann sagði vandamálunum aldrei hafa verið flaggað og þau ekki komið fram í fundarbeiðninni. Þess vegna hefði farið svo að fundurinn var ekki haldinn.

Gögn Landsvirkjunar lúti öðrum reglum

Um afhendingu gagna sagði ráðherrann að öll gögn sem væru til í ráðuneytinu og sneru að málinu yrðu lögð fram.

„Hvað varðar hins vegar fundargerðir og samskipti innan Landsvirkjunar þá lúta þau öðrum reglum og ég treysti mér ekki núna til að fullyrða um hvort mögulegt er að afhenda þau.“

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Karítas

Segist ekki vita um flokksaðild stjórnarmanna

Í síðari fyrirspurn sinni spurði Sigríður hvort það yki eða drægi úr tortryggni að ráðherrann einn skipaði stjórn Landsvirkjunar. Hún spurði einnig hvort eitthvað í rekstri eða arðsemi fyrirtækisins undanfarna áratugi kallaði á breytt fyrirkomulag við stjórnarskipan.

Daði bað þingmenn að fara ekki út í umræðu um flokksskírteini stjórnarmanna.

„Ég hef ekki grænan grun um hvar í flokki þeir sem sitja í stjórnum ríkisfyrirtækjanna eru,“ sagði hann.

„Það er breytingin sem átti sér stað, að það mál skiptir ekki lengur neinu.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅