Rice Krispies-kaka með saltkaramellu

Rice Krispies-kaka Önnu Marínar Bentsdóttur með saltkaramellu, þeyttum rjóma og jarðarberjum. mbl.is/Aðsend

Rice Krispies-kaka getur svo sannarlega gert venjulegt síðdegi að veislu. Hér fær hinn sívinsæli súkkulaðibotn félagsskap af saltkaramellu, þeyttum rjóma, kroppi og jarðarberjum. Útkoman er falleg kaka þar sem stökkur botninn mætir mjúkum rjóma og sæt karamellan fær mótvægi í örlitlu sjávarsalti.

Uppskriftin er frá Önnu Marín Bentsdóttur sem hefur bakað frá barnæsku og gerir fallegar kökur þar sem framsetningin fær að njóta sín. Þessi sómir sér jafnt á kaffiborðinu sem sem eftirréttur í góðra vina hópi.

Rice Krispies-kaka með saltkaramellu

Nóa Kroppi og ferskum jarðarberjum er dreift yfir rjómann áður en kakan er borin fram. mbl.is/Aðsend

Rice Krispies botn

  • 150 g suðusúkkulaði
  • 500 g síróp
  • 300–500 g Rice Krispies

Saltkaramellusósa

  • 110 g sykur
  • 60 g vatn
  • 120 g rjómi
  • Klípa af sjávarsalti

Samsetning

  • 250 g þeyttur rjómi
  • Svolítið Nóa Kropp
  • Jarðarber

Aðferð

Rice Krispies botn

  1. Bræðið súkkulaðið og sírópið saman í potti þar til súkkulaðið er að fullu bráðið og blandan orðin slétt.
  2. Takið pottinn af hitanum og hrærið Rice Krispies saman við, smám saman, þar til ekkert af súkkulaði- og sírópsblöndunni situr eftir á botninum.
  3. Klæðið botninn á hringlaga kökuformi með bökunarpappír og hellið blöndunni í formið.
  4. Þjappið blöndunni vel niður og kælið í ísskáp.

Saltkaramellusósa

  1. Setjið sykur og vatn í meðalstóran pott og hitið við vægan hita. Ekki hræra í blöndunni en fylgist vel með henni.
  2. Þegar blandan byrjar að dökkna skal lækka hitann enn frekar.
  3. Um leið og karamellan verður gullinbrún skal hella rjómanum saman við í þremur skömmtum. Hrærið vel á milli. Farið varlega því blandan getur skvett og heit gufa stigið upp úr pottinum.
  4. Bætið sjávarsalti saman við og sjóðið áfram í 3 mínútur.
  5. Hellið sósunni í hitaþolið mót og látið kólna við stofuhita í um 1–2 klukkustundir.

Samsetning

  1. Þeytið rjómann og setjið til hliðar.
  2. Losið Rice Krispies-botninn úr forminu og leggið á kökudisk.
  3. Dreifið saltkaramellusósunni yfir botninn og smyrjið þeytta rjómanum ofan á.
  4. Dreifið Nóa Kroppi yfir og skreytið með jarðarberjum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅