Þaulskipulagt innbrot í Mjódd: Um 30 milljóna þýfi
Þaulskipulagt innbrot varð í verslunina Gullsmiðinn í Mjódd í nótt. Verðmæti gullsins sem var stolið er sennilega um 30 milljónir króna.
„Klukkan var sex í morgun var hringt í mig frá Öryggismiðstöðinni. Þá hafði maðurinn, sem sér um að ganga um svæðið á morgnana, séð að rúða hafði verið brotin. Hann hringdi auðvitað í mig og lögregluna,“ segir Jón Tryggvi Þórsson, eigandi verslunarinnar, í samtali við mbl.is en Vísir greindi fyrst frá innbrotinu.
„Ég kom svo hingað um hálfsjö og þá var bara allt í maski. Búið var að tæma búðina af öllu því gulli sem hægt var að taka.“
Sérlega óheppileg tímasetning
Spurður hversu miklum verðmætum þjófarnir stálu segir Jón Tryggvi að nú sé verið að meta það.
„Mér sýnist þetta allavega nálgast 30 milljónir króna.“
Þá segir hann tímasetninguna sérlega slæma þar sem jólin nálgist nú óðfluga en vikurnar fyrir þau tvöfaldist salan í versluninni yfirleitt.
Skriðu inn í verslunina
Á öryggismyndavélaupptökum má sjá að tveir menn voru að verki.
Var ekkert öryggiskerfi til staðar sem fór í gang þegar mennirnir brutust inn í verslunina?
„Það kom í ljós að það var hægt að komast inn án þess að fara fram hjá skynjaranum. Þeir skriðu inn að framanverðu, brutu innréttingarnar þar og komust þannig inn án þess að skynjarinn næði þeim,“ segir Jón Tryggvi og bætir við að sérlega svekkjandi sé að öryggiskerfið, sem hann borgi háar fjárhæðir fyrir, hafi ekki virkað sem skyldi.
Er þessi aðferð ekki til marks um að innbrotið hafi verið þaulskipulagt, að þjófarnir hafi þekkt svæðið vel?
„Það var alveg þaulskipulagt. Þetta voru miklir fagmenn,“ segir Jón Tryggvi og bætir við að mennirnir hafi líka bara tekið gullið í versluninni.
„Þeir gerðu sér grein fyrir því að það var verðmætast. Þeir snertu ekkert annað.“
Komu aftur í verslunina
Aðspurður segir Jón Tryggvi að lögregla hafi mætt á svæðið strax í morgun.
„Málið er komið í ákveðið ferli. Við erum að senda lögreglunni myndbandsupptökurnar sem náðust af mönnunum og það er verið að reyna að komast í samband við eigendur allra myndavéla á svæðinu. Vonandi tekst þannig að ná myndum af bílnum þeirra eða einhverju slíku,“ segir hann.
„Þeir virðast hafa verið með þetta vel skipulagt. Bíllinn hefur greinilega verið staðsettur einhvers staðar þar sem myndavélar náðu ekki til hans.“
Hvað tók innbrotið langan tíma?
„Þeir komu fyrst inn um miðnætti og fóru svo aftur. Þeir komu held ég tvisvar, ef ekki þrisvar. Síðast sáust þeir um hálftvö og eftir það sást ekkert meira til þeirra,“ segir Jón Tryggvi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗