Fullyrt að þetta séu þeir tveir kostir sem United skoðar verði Carrick rekinn
Manchester United hefur tvo þjálfara efsta á óskalista sínum ef ákveðið verður að reka Michael Carrick úr starfi.
Samkvæmt Manchester Evening News eru Eddie Howe og Julian Nagelsmann taldir líklegustu arftakar Carrick, sem er undir gríðarlegri pressu á Old Trafford.
United hefur byrjað tímabilið afar illa og er komið í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Carrick, sem er 45 ára, hefur þó tekið skýrt fram að hann ætli ekki að segja af sér.
Howe, 48 ára, er án félags eftir að hafa yfirgefið Newcastle United í sumar og hefur mikla reynslu af ensku úrvalsdeildinni.
Nagelsmann, 39 ára, hefur á sama tíma stýrt þýska landsliðinu, Bayern München og RB Leipzig.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um framtíð Carrick en forráðamenn United eru sagðir skoða mögulega arftaka hans.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗